Goðasteinn - 01.03.1965, Side 26
Þegar sjóhrakningurinn mikli var hér á Mýrum, 3. maí 1843,
missti Ragnhildur manninn sinn, Magnús Sigurðsson, 27 ára.
Ragnhildur var þá 25 ára ekkja með tvær dætur þeirra Magnús-
ar, Guðnýju, fjögra ára, og Sigríði, eins árs. Þórbergur Þórðar-
son rithöfundur skrifar um sjóhrakninginn í bókinni Brim og
boðar II.
Stefán Árnason alþingismaður í Árnanesi var þá hreppstjóri
hér á Mýrum; Nesjasveit og Mýrar þá ein sveit með tvo hrepp-
stjóra. Það kom í hlut Stefáns að gjöra ráðstafanir til að ekkj-
ur eftir sjóhrakninginn gætu bjargazt áfram við búskap, útvega
þeim fyrirvinnu og fleira, svo að ekki þyrfti að sundra heimil-
unum. Ein af þeim ekkjum, er Stefán útvegaði fyrirvinnu, var
Ragnhildur. Hann fékk til þess ekkjumann úr Nesjasveit, Ólaf
Arason, 41 árs. Ólafur hafði með sér dreng, er hann átti, Ara
að nafni. Sagt var, að Ólafur hefði verið ófáanlegur að taka
að sér fyrirvinnustarfið nema fylgdi eiginorð frá ekkjunni. Ekki
var hún ánægð með ráðahaginn, en „neyðin giftir ekkjurnar"
og svo var þarna. Ragnhildur neyddist til að taka þennan kost.
Þau Ólafur munu hafa gifzt 1844. Þegar verið var að búa Ragn-
hildi í brúðarklæðin, var þar nærstaddur bóndinn í Digurholti,
Steinn Bjarnason, mesti sprellikarl. Hann talar í hljóði við þann,
sem næstur honum var, og þó svo hátt, að fleiri heyrðu, meðal
annars brúöurin: ,,Er sem mér sýnist, er hún Ragnhildur ólétt“?
Fólkið sussaði á Stein og kjafthátt hans við þetta tækifæri. Þá
segir brúðurin: „Þrætið þið ekki við augun í Steini“.
Nýstigin af brúðarbekknum sagði Ragnhildur við mann sinn:
,,Æ, það vildi ég nú, að höfuðið á honum Magnúsi mínum væri
komið á þig, Ólafur minn‘.
Ólafur þessi Arason mun hafa verið bezti drengur en þótti
ekki mikill verkamaður. Ragnhildur var aftur á móti harðdug-
leg, örugg og ódeig til orða og verka. Það er hér lítil lág í
túninu á Einholti, er heitir Ólafslág. Þá lág sló Ólafur bóndi
í Slindurholti á degi. þegar hann var hjáleigubóndi og innti af
höndum sláttudag sinn hjá presti. Slægjan þótti ekki stór. Frá
því var einnig sagt, að er Ólafur fór í fjörð að leita fiskjar,
ásamt fleiri Mýra- og Nesjmaönnum og margir lcomu með stór-
24
Godasteinn