Goðasteinn - 01.03.1965, Síða 86
það saínnúmer 1645. Blaðskrautið þekur skurðflötinn að mestu
cg er samansett og skorið af listfengi skurðmeistara. Á lokinu
cr ártal gert með undarlegum hætti: AHEC. Er þar miðað við
röð stafa í stafrófi, og verður úr ártalið 1853. Árið 1963 gaf Jón
Gunnarsscn bóndi á Velli í Hvolhreppi safninu asklok, sem sver
sig í sömu ætt. Útskurðurinn er ögn fíngerðari en auðsjáanlega
verk sama manns. Ártal er skorið með venjulegum hætti, 1851.
Höfundur þessara tveggja hluta er, án vafa, Filippus Bjarnason
frá Sandhólaferju, bóndi á Efri-Hömrum í Holtum. Það er verk-
cfni fyrir listfræðinga að gera grein fyrir skurðlist Filippusar
cg ættmenna hans, Sandhólaferjumanna. Listfengi þeirrar ættar
hcfur verið óvenju mikið og haldizt í marga ættliði. Útskornir
gripir eftir Filippus eru til í Þjóðminjasafninu, í byggðasafninu
á Selfossi, í byggðasafninu í Skógum og margir eru í eigu ein-
stakra manna. Eru þeir allir með greinlegum höfundareinkenn-
um. Ber þess þó að gæta, að Gunnar á Sandhólaferju, bróðir
Filippusar, fckkst einnig við útskurð, og er skurðstíll hans ná-
skyldur skurðstíl Filippusar.
Filippus var fæddur á Sandhólaferju 15. marz 1822, sonur
Bjarna Gunnarssonar (glímu-Bjarna) og konu hans Valdísar Jóns-
dóttur. Hann kvæntist Guðrúnu Árnadóttur bónda á Stóra-Hofi
á Rangárvöllum, Jónssonar. Bjuggu þau að Háfshóli í Holtum
cg síðar að Efri-Hömrum í sömu sveit. Guðrún andaðist 26.
okt. 1866. Seinni kona Filippusar (1874) var Salvör Þórðardóttir
frá Meðalhoitshjáleigu. Filippus andaðist 14. okt. 1900. Börn hans
og Guðrúnar voru: 1. Árni kennari og gjaldkeri í Ásgarði, Vest-
mannaeyjum, kvæntur Gíslínu Jónsdóttur frá Óttarsstöðum í Ölf-
usi. 2. Bjarni í Kálfholtshjáleigu, kvæntur Sesselju Vigfúsdóttur
frá Hárlaugsstöðum. 3. Sigurður á Efri-Hömrum, kvæntur Ingi-
björgu Sigurðardóttur, ættaðri af Skógarströnd. 4. Valdís, gift
Ingimundi Vigfússyni í Bræðraborg á Stokkseyri.
Heimildir: Kirkjubækur. Frásögn frú Marsibil Jóhannsdóttur frá Ölvesholts-
hjáleigu. Mynd Filippusar er fengin að láni frá Þorsteini Þ. Víglundssyni
fyrrv. skólastjóra, mynd af askloki cr tekin af Vigfúsi Friðrikssyni ljósmyndara.
84
Goðasteinn