Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 6

Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 6
orðnir þreyttir og ákváðum að fara ekki lengra. Snerum við heim á leið, þegar við höfðum kvatt ána með stuttri bæn. Mættum við tveimur mönnum, sem farnir voru að leita að okkur og veittu okkur þessa áminningu: „Þið eigið að láta fólk vita ef þið ætlið að fara langt.“ Við gjörðum góða ferð, nú kom ærin ekki í túnið, og við vorum frjálsari. Nú var smalað og geldfé rúið. Ekki kom ærin og þótti aldrei gott, þegar vantaði ær, sem átti að færa frá. Ærin kom ekki í fyrstu rétt um haustið, og nú vorum við teknir í próf um það, hvað við hefðum gert við hana, en við sögðumst hafa skilið við hana í fallegum grasbotni. Var þá látið nægja að stríða okkur með ferðinni, en í annarri rétt kom ærin í öllu reyfi og með fallegu lambi. Þá vorum við ánægðir og þá var hætt að stríða okkur. Leikföngin mín voru skeljar, bobbar, horn og kjálkar, og við þau undi ég glaður, og ekki var minni ánægjan yfir upptíningnum á vorin, sem var innleggið okkar barnanna, þegar farið var í kaupstaðinn. Nú liggja hagalagðarnir í friði, börnin hafa öðru að sinna en tína þá upp. Oft kom ég í smiðjuna til Eiríks. Hann smíðaði mikið bæði fyrir heimilið og aðra. Rennibekk átti hann og renndi í honum rokka og margt annað. Fleira en smíðarnar dró mig í smiðjuna, þar voru lömb höfð á vetrum, og þau þótti mér skemmtilegt að skoða. Þau voru hressileg og þoldu vel reykinn en voru blá á ullina af honum. Ekki reiknuðu bændurnir á Hvalnesi tímakaup fyrir vinnu sína í annarra þágu, en það kom oft greiði á móti greiða. Ekki voru allir bændur búhagir og ekki allir bændur búmenn, en Hvalnes- bændurnir voru góðir búmenn. Guðrún kona Eiríks var sterk og þrekmikil kona og kát. Það kom fyrir, að hún var búin að slá góða skák í túninu, þegar fólk kom á fætur. Venjulega var þó farið snemma á fætur á þeim árum. Það er líka hollt og hressandi að vera snemma á fótum. Nú stóð mikið til, ég átti að hafa vistaskipti. Fóstri minn var búinn að byggja baðstofu í Svínhólum og ætlaði að flytja þangað 4 Goðasteinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.