Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 81
slíkan, gerðan af honum scm eftirmynd gömlu stafanna. Á Húsum
í Holtum fékk ég stafina, scm gömlu konurnar þar höfðu gengið
við til Kálfholtskirkju og gengið við hcima á bænum, er þörf
krafði. Báðir eru þcir úr tré og með handfangi úr tré, skraut-
lausir og fornfálegir orðnir og þó ekki í minni mctum hjá mér en
skrautstafir sýslumanna og presta. Á annan er skorið fangamark
eiganda, A.F. - Anna Finnbogadóttir.
Sagnir herma að piltar hafi stundum gefið stúlkum sínum stafi
í tryggðapant, en þá var líka vel til þcirra vandað.
Krókstafir úr spansreir eru enn í notkun og þarfnast lítt um-
sagnar. Geta má þeirra hjáverka þeirra að veita fjármanni fulltingi
við að handsama unglamb til mörkunar að vori, og eins sá ég
gamlan mann nota stafinn sinn við að ná af hestbaki ullarlögðum
upp úr vellinum. Skrautstafir svipaðrar gerðar verða vinagjafir, er
líður að lokum 19. aldar, og síðan allar götur til þessa dags.
Byggðasafnið í Skógum á gott safn slíkra minjagripa, sem margir
eru búnir silfri og sumir gulli. Eg minni þar á stafi Sighvats Árna-
sonar alþingismanns í Eyvindarholti (1901), Þórðar Guðmunds-
sonar alþingismanns í Hala, Ólafs Ólafssonar í Lindarbæ, Ólafs
Jónssonar í Austvaðsholti, sr. Ófeigs Vigfússonar í Fcllsmúla (2),
Lárusar Helgasonar alþingismanns á Kirkjubæjarklaustri, Árna
Jónssonar í Pétursey, Páls Jónssonar í Hrífuncsi, Ólafs Eiríkssonar
kennara og Tómasar Böðvarssonar á Reyðarvatni. Stafur Björgvins
Vigfússonar sýslumanns er mcð handfangi úr beini og prýddur
útskurði Ríkharðs Jónssonar myndskera. Bútar úr göngustaf sr.
Eggerts Pálssonar á Breiðabólsstað cru prýddir útskurði cftir
Jónas Magnússon eldra í Strandarhöfði. Sérstöðu í þessu stafa-
safni hafa svo hjónastafirnir frá Vclli í Hvolhreppi, en það eru
stafir Hermanns Johnson sýslumanns og konu hans Ingunnar Flall-
dórsdóttur, gerðir úr spansreir og með silfurhnúð (hún). Hafa þcir
fylgst að alla tíð, síðast lengi varðveittir af Ingunni Kjartansdóttur
frá Þúfu, systurdóttur Ingunnar á Velli. Einn göngustafur byggða-
safnsins er með handfangi, sem gert er scm hestlöpp og cndar í
hófnum. Annað handfang, laust við stafinn sjálfan, er skorið í
harðvið forkunnar vel sem ormur með gapandi gini. Skógasafn á
því furðu gott heimildasafn um sunnlenska göngustafi í liðinni
Goðasteinn
79