Goðasteinn - 01.06.1975, Side 19

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 19
lækjum var silungur, mestmegnis sú tegund, er lækjarsilungur heitir. Verður hann ekki stærri en lagnetatækur. Hann klakti út í ánum og lækjunum og var þar staðfastur. í Deildará og Hvammsá gekk fyrrum stór sjóbirtingur og bleikja til hrygningar. Var þar um allmikið klak að ræða að sögn mér eldri manna. Tel ég eftir þeim sögnum og heimildum, sem ég hef frá gömlum Mýrdælingum, að það klak hafi að miklu leyti haldið við silungsstofninum, sem um Ósinn gekk hér fyrr meir. Silungs- veiði var frá fornu fari mikil í Dyrhólaósi, bæði í lagnet og við ádrátt. Faðir minn, Magnús Finnbogason, sagði mér, að þá er hann var unglingur í Presthúsum, hafi þaðan verið stunduð lag- netaveiði í Ósnum. Notað var 10 faðma langt lagnet, og fékkst í það svo mikill silungur um sláttinn, að nægði til matar dag hvern á stóru heimili. Sagði faðir minn, að þessi silungur hefði verið stór urriði og bleikja. Var þá venja í Reynishverfi, að hvert heimili þar stundaði þessa veiði með ekki meiri netakosti en þeir í Presthúsum. Síðan eru liðin 80-90 ár, og hefur mikil breyting orðið á veiðinni á þeim tíma. Hin síðari ár heyrir það til undantekninga, að silungur fáist í lagnet, þótt enn sé sú veiði reynd af gömlum vana. Síðustu sumur hefur það hinsvegar hent sig, að laxar hafa veiðst í sil- unganet. Á meðan siiungur gekk úr sjó í Ósinn og lokaðist inni á haust- in, þá gekk hann í árnar til hrygningar. Með sífækkandi fiskum, sem komast upp í árnar, þvarr veiðin æ meir eftir því sem árin lðiu. Þetta tel ég meginorsök þess, hversu veiði hefur þorrið í Ósnum. Ég heyrði talað um tvo menn, sem hefðu stundað ádráttarveiði í Dyrhólaósi, þá Magnús á Skagnesi og Stefán lækni á Dyrhólum. Þeir áttu að hafa mokveitt í vesturósnum í dráttarnet, og hefir það eflaust gengið of nærri stofninum. Ég stundaði á tímabili ádráttarveiði í Ósnum og veiddi stundum allsæmilega, en þetta fór alltaf minnkandi, og ég er viss um það að nú síðastliðin 20- 30 ár hefir enginn fiskur gengið upp Deildará eða Hvammsá til hrygningar. Silungur sá, sem enn veiðist í Dyrhólaósi, er að mínum dómi Goðasteinn 17

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.