Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 10

Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 10
smalinn átti þá mörg sporin kringum ærnar. Þá höfðu konurnar ærinn starfa við að athuga mjólkurílátin. Þau voru öll úr tré, prýðilega smíðuð og pottheld. Allt, sem gömlu mennirnir gjörðu, var vandað. Vandi mikill var að halda þessum tréílátum hreinum svo mjólkin súrnaði ekki. Gömlu konurnar kunnu vel að búa til skyr og osta. Miklu smjöri og skyri var safnað til vetrar. Ég man eftir stóru keraldi heima, fullu af skyri á haustin. Á því voru tré- gjarðir. Þegar hætt var að færa frá, var líka hætt að safna skyri, og gamla keraldið var tekið undir kartöflur. Mikil framför þótti það, þegar skilvindur komu og konur losnuðu við að setja mjólk- ina upp í trog og bala. Ég sat yfir kvíám í 5 sumur. Ég sé í anda liðna tíð, blessaða litlu smalana, sem löbbuðu eftir ánum með léttan matarpoka á bakinu. Það var ekki fjölbreytt fæði smalans, brauð með osti og mjólk á flösku. Um aldamótin var ekki til kjöt á sumrin á hverj- um bæ. Ég hlakkaði tii, þegar komið var úr kaupstað, frá því að fara með ullina og fá góðar kringlur, rúsínur og steinsykur, það þarf ekki mikið til að gleðja börn. Snemma voru börnin vanin við að vinna, jafnt stúlkur og dreng- ir. Stúlkur sátu yfir kvíánum engu síður en drengir, fóru í fjall- göngur og fóru með mat og kaffi á engjar. Þetta varð svo hörku- duglegt fólk og vel vinnandi. Ég var tvo mánuði í barnaskóla. Reynsluskóiinn er besti skól- inn. Af mörgu má læra, og ég hef alltaf verið að læra. Ég minnist þess, að við vorum að koma heim af engjum í votviðri. Þá segir öldruð kona: „Nú fer að koma þurrkur, það hvín í fossinum." Þá var mikið hey undir. Daginn eftir var kominn þurrkur og héist í hálfan mánuð. Mér þótti þetta skrítið, að fossinn skyldi spá með s.inni raddbreytingu. Ég fór alltaf til berja 20. sunnudag í sumri, en oftast sátu störfin í fyrirrúmi. Mér lciddist að vera við heyskap á haustin, en ánægður var maður, þegar vel heyjaðist og heimilið var vel undir veturinn búið. Það hefur oft verið dauflegt á bæjum að una við lítið ljós og oft mikið myrkur og þá mátti eldurinn helst aldrei deyja, því lengst af voru engar eldspýtur og önnur eldfæri vart fyrir hendi. 8 Goðasteinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.