Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 16
fékk það góðar und.irtektir. Svo var farið að undirbúa samkom-
una. Konur félagsmanna bökuðu til hennar. Þetta var eftir haust-
annir. Nú var samkoman boðuð. Þarna kom saman margt fólk og
skemmti sér vel. Það voru fluttar ræður, sýnd glíma og dansað og
sungið við undirspil harmóniku af manni, sem kunni til þess lista-
vel. Vcl var veitt, og allir fóru glaðir og hressir heim. Þorleifur
í Bæ var hrókur alls fagnaðar og félagslyndur. Hann var hálf-
bróðir Einars á Hvalnesi og þeirra systkina.
Fundarhúsið var byggt 1912 og komst að öllu upp sama ár,
byggt fyrir gjafafé og gjafavinnu. Eitthvað lagði hreppurinn til og
átti svo húsið. Mikill fjöldi af fólki var samankominn, þegar húsið
var vígt. Margt fólk kom úr næstu sveitum. Sýndur var sjónleik-
ur: „Sálin hans Jóns míns“ og þótti takast vel. Samkomur voru
haldnar í húsinu á hverjum vetri og sjónleikir sýndir og fleira til
skemmtunar haft.
Nú komst það mál á dagskrá hjá kvenfélaginu, að það þyrfti
að stækka fundarhúsið og það var gert. Byggð var kaffistofa við
það og kjallari undir, sem var spunastofa. Þá hafði kvenfélagið
fengið Ólaf á Hvalnesi til að smíða spunavél. Konurnar drógu
sig ekki í hlé með framkvæmdir. Þær voru vel vakandi í sínu
starfi og eiga heiður skilið.
Stofnað var mcnningarfélag í sýslunni og samkomur haldnar til
skiptis í hrcppunum, Það voru góðar og skemmtilegar samkom-
ur og oft harðar umræður. Þessi mót stóðu yfir í þrjá daga. Var
vakað ut síðustu nóttina og dansað af miklu fjöri. Mótin voru
haldin sncmma vetrar. Fólk kom gangandi langar leiðir, enda
bílar þá fáir og helst vörubílar.
Nú er þyngra undir fæti í félagsmálum cn áður var í Lóni sök-
um mikillar fólksfækkunar. Nú eru þar 12 jarðir í byggð, 5 farnar
í eyði. Um aldamótin var tvíbýli eða fleirbýli á flestum jörðum.
Nú eru 70 manns í Lóni, þar af 18 börn ófermd, en 1920 var
fólksfjöldinn 210 í Lóni, svo mikil er breytingin og ekki auðvelt
með félagslíf eða samkomuhald miðað við fyrri tíma. Flöfuðbólið
Bær er í eyði. Þar áttu heima, þegar flest var, 50 manns, á Stafa-
14
Goðasle'um