Goðasteinn - 01.06.1975, Síða 22

Goðasteinn - 01.06.1975, Síða 22
kennslustaður fenginn hjá vellöguðum manni til þess starfa, Hall- dóri Jónssyni bónda á Syðri-Steinsmýri í sömu sókn, hvar ég nam á téðum vetri bóklestur og kristindóm minn í Pontopidans spurn- ingakveri, og vegna þess ég átta ára gamall kunni hann viðstöðu- laust, fékk faðir minn biskupsleyfi til að ferma mig eftir honum árið 1800. Um vorið á einmánuði, á 13. ári, fór ég fótgangandi með öðrum manni langan og örðugan veg frá Lyngum að Hofi í Álptafirði í Suður-Múlasýslu með sauðfénað foreldra minna, þareð síðast- nefndur staður var veittur föður mínum haustið áður, þann 17. sept. 1799. Á Hofi var síðan hlutfall mitt að þjóna í þeirri sama- staðar mjög örðugu en mér ávallt fyrr og síðar ógeðfelldu sauða- hirðisstöðu, til þess ég skömmu fyrir jólaföstu árið 1802 fann upp það ráð, sem mér síðan kom að góðu, að beiðast orlofs hjá föður mínum að mega fara skemmtiferð til Reykjavíkur, hverja ósk mína ég fékk uppfyllta vegna þess, að presturinn séra Markús Sigurðsson, þáverandi á Mosfelli, er þangað var nýkominn frá Heiði í Mýrdal, hafði ei gjört skýra grein fyrir tveggja ára afgjaldi af jarðarpörtum föður míns í nefndri sveit, því hann var umboðs- haldari hans, og þetta skírteini átti ég einungis að útvega. Þessa ferð byrjaði ég fátækur, fótgangandi, líkt og Tobbías yngri forðum (Tob. 5,16), frá foreldrahúsum í téðu skammdegi, 15 ára gamall þann langa og torfæra veg frá Hofi til Reykjavíkur, á hverjum ég oft varð að mæta mörgu andstreymi og sem ungl- ingur ýmist einmana, oft, einkum í stórvötnum, varð að sjá tví- sýni á lífi mínu og loksins með öðrum lítilsigldum manni, Jakobi Þorleifssyni, lá úti í megnustu snjóófærð, villtur og matarlaus á Hellisheiði nokkuð á þriðja dægur, uns ég mjög aðfram kominn náði Helliskoti, hvar ég með fylgdarmanni, sem var eins aumlega á sig kominn og ég, tók mér litla hvíld í hroðafleti (11 gestir vóru þar fyrir), en fór svo að kalla algjörlega á mis við annan beina, hvaðan ég dróst sem fyrst, þjáður af sulti, harðsperrum og afrifum, og náði sama kvöld að mér réttnefndum góðum foreldrahúsum, Lambastöðum á Seltjarnarnesi, hvar biskup, herra Geir Vídalín, bjó þá, hjá hverjum háttnefndum þá þjónaði skrifari minn til dauðadægurs ógleymanlegi velgjörari og ættbróðir, stúdent Stefán 20 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.