Goðasteinn - 01.06.1975, Side 26
Um haustið, 3. ágúst 1812 var ég kallaður til kapeláns a£
sóknarprestinum í Dyrhóla- og Sóiheimaþingum í Mýrdal, séra
Oddi Jónssyni, og var vígður af biskup G. Vídalín í Reykjavíkur-
dómkirkju 20. sunnudag eptir trinitatis, sem var 11. okt. Byrjaði
ég þá strax að þjóna velnefndum presti og dvaldi hjá honum á
Felli um veturinn, en konan mín gætti búsins okkar á Klaustrinu,
þangað til við næsta vor, 1813, fluttum það að Holti í Mýrdal.
Sótti þá séra Oddur til konungs ásamt ölium sínum búsettum
sóknarmönnum um, að ég mætti verða eptirmaður sinn í téðu
prestakalli, á hverju konungs allra náðugasta andsvari, sem þó
meinast komið hafi, aldrei hcfur fiðurbólu uppskotið, það ég
til veit.
Þann 8. janúar, 1814 hlaut ég að sjá á bak þessum mínum ást-
ríka yfirmanni. Var þá áðurnefnt brauð veitt Þórði prófasti Brynj-
úlfssyni. Sótti ég nú um Þykkvabæjarklaustur, sem séra Þórður fór
frá, en fékk ekki. Bauðst mér þá að verða aðstoðarprestur séra
Helga Bjarnasonar á Reynivöllum í Kjós, hverju boði ég hafnaði,
en fékk nú þann 20. janúar veitingarbréf fyrir Skúmstaða- og
Stórólfshvolsþingum. Fluttist ég þá um vorið 1815 að Stórólfs-
hvoli, hvert þá var útnefnt eptir tilmælum mínum fyrir æfilangt
prestssetur. Þjónaði ég það sama sumar ásamt Stórólfshvoli Breiða-
bólstaðar kirkjusókn, en ég eptirlét í þess stað Sigluvíkursókn
tengdabróður mínum, sem þá var brauðlaus, séra Benedikt Magn-
ússsyni, er bjó á Forsæti í Landeyjum.
Veturinn 1817 sóktum við séra Sigurður Gíslason Thorarensen
prestur á Mýrum í Álptaveri um að mega hafa brauðaskipti og
fengum þar til leyfi stiptamtmanns 18. febrúar s.á., og fluttist ég
þá í fardögum 1817 að Mýrum, hverju prcstakalli ég þjónaði til
ársins 1827. Árið 1823, þann 26. dag júnímánaðar kom upp voða-
legt eldgos úr Kötlugjá í Mýrdalsjökli, yfir hvert, sem ég var and-
spænis gjánni, einna hægast átti yfir að sjá, hélt greinilega dagbók.
Tók það mikla vatnsflóð, sem gosinu fyigdi, af mestallar engjar
mínar1) og myndaðist þá in svonefnda Landbrotsá, sem rann milli
t) Hérumbil 30 faðma, eða 600 hesta af heyi.
24
Goðasteimj