Goðasteinn - 01.06.1975, Side 40

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 40
með heybandið og voru optast 15 hestar í lest en í Vestri-Tungu optast ekki nema 12. Samt var nafni minn optast á undan ná- granna sínum úr teignum, þó tveir létu upp, hvur á móti öðrum, cn nafni minn ekki nema einn með mér, sem undir stóð. Nú kom opt fyrir mig, þegar ég var í Tungu, að ná hestum, sem voru styggir. Tel ég þar með bleikskjóttan hest, er síðar var seldur séra Jóni Högnasyni í Hrcpphólum á 9 spesíur. Þessi hest- ur var tiltakanlega góður, þar sem vegur var greiðfær, so komu nú gallarnir, sem voru þeir, að hann þótti bæði styggur og fælinn og fyrir þessa galla látinn burtu. So kemur annar til sögunnar, jarpur á háralit, mig minnir 6 eða 7 vetra. Mátti hann helst heita ljónstyggur. Þrír fullorðnir karlmenn gerðu ekkert betur en ná hon- um í trossu, samt náði ég honum einn útá víðavangi, en þurfti þá að fara so hægt sem kunni. Líka var það einu sinni, að ég fékk taksting undir síðuna, sem batnaði við blóðtöku, og gerði það Loptur Guðnason, stjúpi minn, en mér varð ekkert gott af þessari blóðtöku, eptir þetta tók blóðið skakka stefnu, því annað hvort hafði ég sorg eða gleði, er gekk yfir hóf, og var þctta hvurutveggja verra en það hefði ckki verið. Þegar því sem svarar frá þessari blóðtöku vóru liðin 4 ár, var ég orðinn alófær, gat ekki sofið og varð þegar brjálaður. Var so tekið blóð uppá handleggjum. Þetta bætti mig ekkert, ég miklu heldur versnaði, og mátti þetta heita með þcim verstu hrossaráð- leggingum, sem þá gerðust en nóg og fullkomið til að gera mig að ónýtum manni, vegna þess að hverjum manni og hverri skepnu er meðskapað sitt eigið blóð, og beri útaf þessu, hlýtur maðurinn mikið að missa, þar sem hann missir sitt óspillta blóð. Nú kom að því, að ég átti að fara að róa 16 ára gamall. Það var í Út-Landeyjum, á þriðja í páskum, hjá Jóni á Álfhólum og fengu þeir þennan dag 120 í hlut í 16 staði, og var þetta því um kvöldið álitlegar kasir. Þetta er mesti fiskur á einum degi, sem ég hef séð og ég hef verið með, en þennan dag fékk ég 34 fiska en dró 44. Þennan dag hafði ég mikla sjósótt, sem lengi hélst við mig, þar til þó loksins, ég gat hana yfirunnið. Þarna í Landeyjunum var ég í þrjú ár til hálfdrættis og hálfs hlutar, þangað til ég var um 20 ára. Var ég þá ráðinn suður í 38 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.