Goðasteinn - 01.06.1975, Blaðsíða 52
Mosfellssveit að Vatna sæluhúsi, sem vat á leið til Kolviðarhóls.
Vegagjörð á árum þessum var öll bráðónýt og þurft.i vegabót
mikið bctri.
Að vetrinum hef ég sjálfsagt róið í Reykjavík og fór þaðan
ekkert í burtu, fyrr en ég sá ég mátti tii. Einu sinni var það,
ég var staddur hjá Guðna á Keldum í Mosfellssveit við túna-
sléttun. Kom þá að norðan Pétur Valgarðsson með besta kaup,
sem vani hans var. Hann var líka með kærustu sína, sem þá
var, Kristínu að nafni. Spyr ég þá Pétur, hvort ekki muni tiltæki-
iegt að ég færi með honum landveg gangandi. Tók hann heldur
vel undir, það mundi geta tekist. So næsta sumar tók ég uppá því
að ganga með þeim Pétri og Kristínu og beiddi Pétur fyrir tölu-
verða reiðslu so sem brauð og smér.
Ég lagði á stað úr Reykjavík 1874 með Pétri austur Þing-
valiasveit og norður Kaldadal, og fannst mér hann þá bæði langur
og lciðinlegur, svartur og svipillur. Þótti mér þá eins og var illur
gangurinn með stanslausri ferð, svo við Pétur skildum ferðalagið
við Kalmanstungu. Var ég so einn en hitti lest með skreið að
sunnan og iofuðu mér þegar að ríða lausum hesti, er þeir voru
með, og var ekki trútt um þeim þætti fátækleg mín ferð, eins
og líka var, að fara hestiaus í kaupavinnuna og ekki neitt vel til
reika að neinu leyti. Kom ég þá fyrst til byggða að Grímstungu,
austasta bæ í Vatnsdal. Mæltist þá húsfreyja Guðrún til ég færi
fyrir sig að Gafli í Svínadal. Ekki gat ég þegið þessa ráðleggingu
og hafði síðar beðið töluverðan halla af því. Komst ég þá að
Hofi, sem er mikið neðar í dalnum.
Guðmundur Jónasson hét sá, sem þar bjó. Þar var ég, mig
minnir viku, krónu um daginn. Þá þessari viku var lokið, beiddi
Guðmundur mig að fara til bróður síns að Flögu, neðar í dalnum.
Bjarni og Björg hétu hjón þessi. Var ég þar í 3 vikur. Sat ég yfir
50 ám og hefur mér aldrei geðjast vel að þeirri vinnu. Fór so
þaðan og útað Ægissíðu til Benjamíns sem þar bjó. Var hjá
honum það, sem eptir var af slættinum, 8 krónur um vikuna,
tók kindur í kaupið og seldi þær síðar þar í Vatnsdalnum. So
átt.i nú að fara að leggja á stað og suður fjöll með fcrðafólki
mínu so sem fyrirliðanum Eggert frá Skógtjörn á Álptanesi og
50
Goðasteinn