Goðasteinn - 01.06.1975, Page 73

Goðasteinn - 01.06.1975, Page 73
eigendum sínum jafnt til kirkju sem annarra mannfunda. Hélst svo lengi uns bílaöldin kom til sögunnar og þeir gátu ekki fylgt mönnum eftir eins og þegar þeir ferðuðust fótgangandi eða á hestbaki. Og verða nú bréfin birt: Til biskups H. Thordersen. 31. janúar 1854. Eftir að ég 26. mars f.á. varð á uppboðsþingi orðinn hæst- bjóðandi að spítalafiskinum í Árnessýslu næstliðna vetrarvertíð, bað ég líklegustu menn í hvörri veiðistöð að taka hann til verk- unar og hirðingar fyrir mig og fékk ég vigt og tal á fiskinum frá Selvogi og Þorlákshöfn. En þegar mig fór að lengja eptir vigt og tali á fiskinum frá Stokkseyri, Loftsstöðum og úr Skúmstaða- sandi (eptir að hlutaðeigendur höfðu lagt hann inn saltaðan tal- lausan í rcikning minn á Eyrarbakka) skrifaði ég þeim til og óskaði upplýsingar um það, en þessi var ófáanleg hjá þeim, að vigtinni til, þar sem þeir sögðust hafa reitt sig upp á hana hjá hreppstjórunum, sem sögðust hafa gjört sýslumanni skil fyrir hvorutveggju og hefðu það ekki framar. Ég hélt mér svo til sýslumannsins, sem sagðist hafa sent hvorutveggja herra biskup- inum og hefði það ekki framar; einasta gat hann látið mig vita uppboðsverðið, en betalingsfrestsins hefur hann gleymt að minn- ast, og hafði ég þó beðið hann að minna mig á hvorutveggja. Þetta hefði komið fyrir lítið, á meðan ég gat ekki vitað að minnsta kosti vigtina. Mig drap og sá dulur, að ég hugsaði að hér hagaði eins til og við hvert annað uppboð, að mér yrði með- deildur uppboðsreikningur, þá sýslumaður hafði fengið vigt og tal fisksins. Nú hafa yðar háærverðugheit í dag meðteknu háttvirtu bréfi af 9. þ.m. góðsamlega leyst mig úr þessu vandræði, eftir ósk sonar míns, Stefáns, mín vegna, og meðdeilt mér þá nauðsynlegu upplýsingu, sem ég hef getað fengið, og fæ ég nú færi á, að geta losað mig við þetta gjald með meðfylgjandi 21. rbd. 57 sk. hvörju ég vildi fyrir löngu hafa getað afgreitt, hefði það ekki Goðasteinn 71

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.