Goðasteinn - 01.06.1975, Side 87

Goðasteinn - 01.06.1975, Side 87
nafninu til, því að Baldvin skrifaði ritið að mestu leyti einn og lagði þá oft nótt við dag, er hann var að koma því út. Markmið Baldvins með tímaritinu var að koma á margvísleg- um umbótum og efla framfarir í landinu. Lagði hann ríkasta áhcrslu á að bæta þyrfti uppeldi þjóðarinnar, svo að dafna mætti með henni manndyggð, þekking og atorka, en þá eiginleika taldi hann vera grundvöll sannra þjóðþrifa og uppsprettu farsældar og hamingju mcðal mannanna. Greinar sínar ritaði Baldvin oft í samtalsformi og lætur þá gjarna fjórar persónur hittast og ræðast við um landsins gagn og nauðsynjar. Koma þar fram Sighvatur, bóndi af Norðurlandi, Ogmundur, tómthúsmaður af Suðurnesj- um, Þjóðólfur, bóndi af Suðurlandi, og svo Ármann úr Ármanns- felli. Eru þetta fulltrúar mismunandi skoðana og úr ólíku um- hverfi. Ræðast þeir við af hreinskilni og kryfja málin til mergjar á Þingvöllum við Öxará, - grunni hins aldna Alþingis, er lagt hafði verið niður. Jafnframt stofnun tímaritsins efndi Baldvin til félagsskapar íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn. Héldu þeir fundi og ræddu málefni lands síns og hvernig mætti efla hag þess og bæta. Fundi þessa nefndi Baldvin Alþingi og bendir sú nafngift ásamt skrifum hans til þess, hvert hugur hans stefndi, sem var endurreisn Al- þingis. Með stefnu sinni og starfi vildi hann vekja þjóðina af aldagömlum dvala og fá fólkið í landinu og þá einkum bændurna til að sinna og taka þátt í margvíslegu þjóðmálastarfi. En tii þess þyrfti að endurreisa Alþingi. Það skyldi vera ráðgefandi stofnun, sem gæfi konungi ráð og bendingar um það, hvernig stjórna skyldi landinu, svo að efiast mætti hagur og menning þjóðarinnar. Þróun heimsmála var Baldvini og íslcndingum hliðholl um þetta leyti, því að júlíbyltingin í Frakklandi 1830 kom af stað miklu róti og út frá henni barst alda frjálslyndis víða um lönd, svo að jafnvel hásæti einvaldskonunga gerðust nokkuð ótrygg. Friðrik konungur 6. í Danmörku bauð þá þegnum sínum að stofna til ráðgjafaþinga, er skyldu starfa í fernu lagi eftir landshlutum, í Holtsetalandi, Slesvík, Jótlandi og á eyjunum. Var og ákveðið að Islendingar sendu fulltrúa frá sér á þing Eydana. Þá reis Baldvin upp gegn þessari hugmynd og ritaði skelegga og ákveðna Goðasteinn 85

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.