Goðasteinn - 01.06.1977, Síða 6
Dalstorfuna svo og hinir efri Hólmabæirnir nema Miðeyjarhólmur,
sem fylgdi Austur-Landeyjahreppi að sveitarskilum öilum og átti
kirkjusókn að Voðmúlastöðum. En hinir bæirnir, sem fylgdu Vestur-
Eyjafjallasveit, áttu kirkjusókn að Stóra-Dal.
Innsti hlut.i Brúnalands er Brúnatangi í norðaustur af Dalsseli
og er Fauski þar á milli, sem fyrr er getið. Innan við Brúnatanga
er sandorpið land langt inneftir. Vestan við tangann liggja svo-
nefndir Bugar, Innsti-Bugur og Mið-Bugur, undirlendisblettir, en á
brúninni við Mið-Bug voru sauðahús frá Brúnum frá ómunatíð,
notuð til ársins 1900; þar var gömul fjárborg. 1 Innsta-Bug og Mið-
Bug var slegið, meðan sauðahúsin voru notuð, og spratt vel þar
sem féð gekk. Sunnar var Fremsti-Bugur gengt Borgareyrabænum.
Að vestanverðu við Brúnatangann eru háir sandbakkar meðfram
Fauska, Rofin, og eru við fyrrgreinda Bugi, þ. e. Innsta-, Mið- og
Fremsta-Bugsrof. Undan Rofunum grófust stundum í vatnavöxt-
um trédrumbar allvænir, sem sýndu glöggt að þarna hefur verið
skógi vaxið land að fornu, sem nafnið Fauski bendir einnig til.
fnn að sauðahúsunum var nál. 45 mín. gangur, cn ærhúsin voru
miklu nær bænum.
Inn í Bugum var setið yfir ánum eftir fráfærurnar á vorin, nálægt
hálfsmánaðar tíma, síðan var þeim smalað kvelds og morgna,
þangað til byggður var nátthag.i. norðan við túnið. Þar voru þær
um nætur og þurfti þá ekki að smala nema að kveldi, og þótti
ómetanlegt hagræði og vinnusparnaður.
Þegar sleppir Fremsta-Bugsrofum, tekur við Jaðarinn, valllendis-
bakki meðfram Fauska og nær fram undir fjárhúsin. Á Jaðarinn
voru kýr reknar á morgnana er þeim var hleypt út, ef þær lágu ekki
úti, eða í lágarnar við fjárhúsin, grasgefnar lautir. Sunnan við
fjárhúsin er brúnin óslitin fram hjá bænum og alla lcið fram á
Hraunsnef, miðja vegu milli Brúna og Tjanra. Meðfram brúninni
liggur mýrin og vestan við hana Fauskabakkinn; eru bæði mýrin
og bakkinn slægjur frá Brúnum. En milli mýrarinnar og Fauska-
bakkans eru rimar, þurrir en ógreiðfærir og var sjaldan slegið í
þeim. Mýrin er með leirkeldum og sléttum bölum á milli. Víða
eru dý í mýrinni og fórust þar stundum kindur, þrátt fyrir mikið
eftirlit með fénu, er það sótti í mýrina á sumrum. En á vetrum
4
Goðasteinn