Goðasteinn - 01.06.1977, Blaðsíða 33
um skyggt á dómgreindina, sbr. rúnasteinsmálið í Danmörku, sem
olli leiðindum og miklum deilum.
Finnur var hneigður til ljóðasmíða og gaf út kvæðabók. Hún
heitir Ubetydeligheder, sem má kannski nefna Lítilræði á ísiensku,
og þótti réttnefni. Var þetta fyrsta ljóðabók sem íslendingur gaf út
á dönsku.
Þorkell Jóhannesson segir í Sögu íslendinga, að Finnur prófessor
hafi verið sérlega látlaus maður og einstakt ljúfmenni og meðal
merkustu lærdómsmanna þjóðarinnar á þeim tíma er hann var uppi.
Þúfu 1. dag Febr. 1844.
Hálærði herra prófessor.
Jeg má ekkji undanfella að þakka iður auðmjúklega firir iðar
hæðstvirta tilskrif af 23. Apríl f. á. ásamt með því filgjandi bók
”Ledetraad“, sem mjcr var því kjærkomnari, sem jeg var henni
lítt kunnugur og átti hana ekkji áður; nú hefi jeg fáeinar bækur sjeð
fleiri síðan hvar á rúnaletur verið hefur, so sem er nokkur hefti af
þeim "Antiqvar Annáler“, og núna hef jeg undir hendi „Antiqv.
Amerik.“; er það skjemtileg bók, það sem jeg skjil af henni. - Lítið
er nú firir hendi að senda iður af stafa-mindum, þó hef jeg tciknað
6 stafa mindir sem standa á hellir einum hjer í Sókninni, er hann
hjá gömlum eiði-bæ er nefndist „Kjeraugastaðir", og hafði bær
þessi nafn sitt af hellirskúta öðrum þar í grend, krínglóttum með
stöðupolli í og uppsprettuauga, varð firir fáum árum gjeingjið að-
eins við bcrgjið í kríngum vatnið en nú ckkji vegna þess það hrunið
hefur, nefnist hellir sá ”Kjerauga“ og rennur þaðan lækur; hvað
lángt er síðan jcrðin komst í eiði veit jeg ekkji, eru 3 jarðir bigðar
úr henni í öðrum stað, ”Bjalli, efra- og neðra Sel“ 10 jarðir því
sá gamli bær hafði verið 30^ firr um gjetin hellir hefur líklega
verið brúkaður firir lömb, því hann er so nærri bænum, er hann
krínglóttur, með veggjum úr móbergji, ærið mjúku, so það hefur
mikjið molast niður, þar það hefur slútað inná við; ifir honum er
flöt hraun grítis hella, og er hann 3 álnir á hæð liðugar, en nálægt
18 fóta í þvermál, hefur hann verið víður að framan og þessvegna
hlaðnir kampar af hraungríti og forskáli sem nú er fallinn, síndist
mjer hellirinn fallegur og bjartur þó fólk segði mjer ekkji sem best
Goðasteinn
31