Goðasteinn - 01.06.1977, Blaðsíða 34
af honum áður jeg skoðaði hann. - Stafirnir voru á austur hliðvegg
hanns en dirnar snúa í suður landsuður, voru þessir glöggjir og
skjírir (hér þrír rúnastafir, HG) og eru teiknaðir uppá það ná-
kvæmasta jeg gat, kom mjer til hugar samt að strikjin sem útúr
þeim firri 2 eru að neðan, sem voru mikjið óskjír, hafi rispast
sona útúr, þegar stafurin var gjerður sljettur firir og sjeu því
kannskje rjett teiknaðir sona (hér tveir staf.i.r lítið breyttir, HG) -
hina 3 stafina hitti jeg skamt firir ofan þessa, sár óglögga, litu þeir
út, sem jeg gat næst komist með grannskoðun, sona (þrír óglöggir
stafir, HG). Þetta er nú allt sem ég hef til í þetta s.inn, en í þánka
skal jeg hafa framveigjis sjái jeg þessháttar eða heiri gjetið einhvers
þessháttar, og bið iður forláts á þessu lítilræði. -
Nú dirfist jeg að biðja iður að sína mjer þá góðvild og útvega
mjer, það firir 1841 til 1844 útkomna ”Folke Calender", sömuleiðis
ef það irði útkomið firir 1845 líka, og senda mjer í vor með firstu
skjipum, ásamt ávísun um verðlag þeirra bóka, og með hvurju helst
skjipi það sendast ætti, hvurt með kaupskjipum eða bíða póstskjips,
ásamt hvað þjer eigjið firir þær kringumstæður og firirhöfn af mjer
skjilið í þóknun - jeg treisti iður til þessa og vona því eptir brjefi
frá iður ef annríkji leifir- - Jeg hlít að biðja iður auðmjúklegast
forláts á offirfskunni, ásamt einfeldni miða þessa.
Með hugheilustu farsældar óskum finst jeg iðar þjenustu
-skjildugur og reiðu búinn:
Oddur Erlenzon.
(Þúfu 1 dag Febr. 1844).
Oddur hefur skrifað utaná: Herr Professor, Etatsraad, Geheime
-archivar R. Dbr. F. Magnussen, Köben'havn. Síðar bætti hann við Dr.
Philos. Hann gætir vel þeirrar kurteisi, að ekkert skorti á titiatogið, að
þeirrar tíðar hætti.
Finnur hefur skrifað á bréfið: Svarað 8. Maj 1844, og fylgir þeirri
reglu að skrifa á öll bréfin dagsetningu svarbréfs. -
Ljóst er af orðum Odds í bréfinu, að bréfaskipti þeirra Finns hafa
byrjað á árinu 1843, eða fyrr. Sextán línur með rúnaletri sem Oddur
hefur teiknað, voru á sérblaði. -
í bókinni Sandgræðslan', Rv. 1958, nefnir Guðmundur Árnason í
Múía á Landi Kýraugastaði. Um uppsprettuna, sem Oddur nefnir segir
32
Goðasteinn