Goðasteinn - 01.06.1977, Page 41
um so vel færi, þó eru ærið mörg lítin, og hef jeg hvorkji haft tíma
nje kunnáttu að lagfæra þau, og treisti jeg iður til að virða á hægra
veg - en ef so ólíklega að ber að þjer hugsuðuð til prentunar á því,
þá vær.i æskjilegt að einhver málfróður íslendingur fjallaði um og
lagfærði málið so það irði ei til minkunar, en jeg áskjil mjer að staf-
setningjin fái að halda sjer sem á henni er, þó vera kunni að sum-
staðar þirfti að laga hana líka so hún .irði sjálfri sjer samkvæm.
Mind af Heklu læt jeg filgja, hef jeg tekjið hana eptir því sjónarmiði
er hún er skoðuð frá í ritinu, það er að seigja frá heimili mínu og er
það til upplísingar ritinu og ætti að filgja því ef það væri prentað,
en hún þirfti mikjið að lagast, því jeg ekkji kunnáttu til að minda
so mökkjin að glöggt sæjist saman blöndun ösku mökksins og eld-
gufunnar og munu málarar góðir gjeta það af eigjin hugviti, því
útlit mökksins var so breitanlegt að einu gjildir þó skakkji nokkuð
mind hans frá því sem jeg teiknaði, nema rjett niður við fjallið,
og stærð hans hlítur að vera fult eins mikjil og þar. Lögun eldsins
má ekkji úr skorðum gánga, en útlit hans gjæti orðið líkara en jeg
hefi gjctað sint því mig brast lit þar til, og er lísing hans í ritinu
nógur leiðar vísir til þess - að vísu heiri jeg það hjer á mönnum að
þeim þætti það fróðlegt að þetta kjæmi á prenti, en ekkji hefi (jeg)
ástæður til þess, og v.il jeg gjarnan eptirláta iður forlagsrjettinn ef
þjer vilduð so, og iður þækti það nítandi eða verðugt að prentast.
Uppá spursmál sum í brjefi iðar gjet jeg fáu svarað, þó er það
first um Rangd að seigja að það átti ei að skiljast eptir orðunum,
þó þau sjeu brúkuð í daglegu máli, heldur þíðir það að hún varð
nærri sjóðheit eða vellandi, eins og í ritinu stendur - en um misvísun
segulnálarinnar gjet jeg færra sagt, þó er það skjinsamra manna
ágjizkun að hraunsteinar muni verið gjeta nægjir til þess að draga
hana til sín, enda að ekkji sje fortakandi að einhverskonar dampar
hafi gjetað stígjið upp af Heklu áður en hún gaus, er dreigjið hafi
gjetað nálina til sín, þó þetta sje allt á veikum fæti vegna reinslu-
leisis. Ekkji síndust Norðurljósin koma úr Heklu heldur síndist
sem rót þeirra hjeldi sig nálægt henni og kvísluðust þaðan út um
loptið í ímsar áttir, eins og ritið sínir-
Járn það er hitað var í Heklueldi var rjett eins og það tekjið
væri frá smiðjuabli en eingjinn málmlitur á því - ekkji hef ég heirt
Goðasteinn
39