Goðasteinn - 01.06.1977, Side 48
Saman við ferðir okkar féllu ferðir hinna Norðurlandaþjóðanna-
Minnsta þjóðin í þeim hópi, Færeyingar, sendu vestur 5 fulltrúa.
Mun fleiri fulltrúar voru að vonum frá hverju hinna Norðurland-
anna. íslendingar voru þar eina þjóðin, sem kynnti aðeins þjóð-
hætti á verklegu sviði. Hjá Færeyingum var þetta blandað, þar sem
saman fór hjá þeim kynning á vinnubrögðum og þjóðdönsum. Hinar
Norðurlandaþjóðirnar kynntu svo að segja eingöngu gamla dans-
músik og þjóðdansa. Fór þar mest fyrir fiðluspili, en einnig voru
kynnt önnur hljóðfæri svo sem lykilharpan sænska og borðharpan
finnska (kantele). Ætla ég að þarna hafi komið við sögu áhrif
manns, sem kom mikið við framkvæmd hátíðarinnar, Gordons
Tracie. Hann er mjög þekktur tónmenntamaður í Bandaríkjunum
og víðar. Bækistöð hans er í Washington háskólanum í Seattle. Hef-
ur hann unnið ákaflpga merkilegt starf í eflingu þjóðlegrar tónlistar.
Til áhrifa hans ber a’ð rekja hópa, sem æfa saman fiðluspil og halda
uppi tónmennt, sem lengi hefur dafnað hjá nærrænum þjóðum. Sá-
um við og heyrðum mörg hrífandi dæmi um þetta í ferðinni.
Við hófum för okkar heiman frá íslandi sunnudaginn 20. júní
laust fyrir kl. 6 að kvöldi í björtu og fögru sumarveðri. Það er
skemmtileg revnsla út af fyrir sig að ferðast milli landa með hinum
stóru þotum. Flugleiðir láta farþegum sínum líða vel. Öll fyrir-
greiðsla af hálfu áhafnar er eins og best verður á kosið.
Ókunn andlit horfa við úr nær hverju sæti. í förinni var fjöldi
sænskra ungmenna, sem voru að fara til kynnisdvalar á amerískum
heimilum vestur í Filadelphiu- Flugleiðin lá yfir suður Grænland
og bjart var í lofti, svo við sáum vítt og breitt yfir ísbreðann mikla
og kuldaleg fjöllin út við ströndina. Ekki er til öllu kuldalegri um-
gerð um mannlegt líf, og þó er víst hægt að una því vel þar engu
síður en annarsstaðar.
Handan landsins tekur svo við ísi stráð haf og langt líður þar
til meginlandið mikla, Norður-Ameríka, heilsar, en úr háloftunum
má greina ár, vötn og skóga og mannabyggð, sem þéttist jafnt og
þétt eftir því, sem sunnar dregur. Kvöldrökkrið var lagst yfir
heimsborgina New York, þegar farkostur okkar renndi í hlaðið við
flugstöðina miklu á Kennedy flugvelli. Var klukkan þá gengin
kortér í átta að þarlendum tíma.
46
Godasteum