Goðasteinn - 01.06.1977, Síða 49

Goðasteinn - 01.06.1977, Síða 49
Flugstcðin krefst sinnar reglu, vegabréfaskoðun og tollskoðun taka venjulega s.inn tíma. Við þremenningarnir frá Islandi vorum búin undir ýtarlega skoðun á ullar- og hrosshársvörum okkar, en áhrif Smithsonian náðu þarna inn fyrir veggi, stofnunin tók ábyrgð á gestum sínum, sem raunar var víst óhætt, og töskurnar okkar runnu í gegn samhliða okkur. Leið okkar lá svo út á strætið til móts við bílinn, sem ekur fólk.i og farangri milli flugfélaganna mörgu, sem fara um Kennedy flugvöll. Síðan tók við bið til kl. 10,30 eftir flugi til Baltimore. Á réttri stund lyfti flugvélin sér á loft, upp í myrkvaðan himininn og gafst þaðan kostur á fagurri út- sýn yfir ljósum prýddar húsaraðir og götur New York. Flugið til Baltimore sóttist greitt. Eftir um þriggja kortéra flug lenti flugvélin. Var þá um hálftími til miðnætur. Þorsteinn Ingólfsson sendiráðsritari í Washington lét sig ekki muna um það að vera mættur í flugstöðinni í Baltimore til að taka á móti okkur og bjóða okkur velkomin. Skömmu seinna mættu svo fulltrúar Smithsonian til að taka á móti okkur og aka okkur tii Washington um nóttina. Það féll í hlut frú Vivi Aase að aka okkur til náttstaðar, konu, sem varð nokkurskonar verndarengill okkar dagana í Washington. Vivi Aase er gift Jon Aase, sem til skamms tíma hefur starfað í norska utanríkisráðuneytinu, en nú starfaði við Alþjóðabankann í Washington. Flafði frúin tekið að sér að vera forsjá norrænu gestanna meðan þeir dveldu í Washington og reynd- ist þeim í öllu eins og sönn móðir, sköruleg, rösk og ráðsnjöll. Hún ók bíl sínum sem leið lá og sóttist grcitt- Var vegurinn þó á köflum heldur laklegur, enda unnið að viðgerð hans. Ferðin milli borganna tók um klukkutíma. Komum við til Washington kl. 1,30 um nóttina. Ók frú Vivi okkur fyrst til opins veitingastaðar og flutti okkur út í bílinn samlokur og svaladrykk. Var svo ekið til Georgstown háskólans, þar sem okkur var búinn dvalarstaður í Harbin Hall stúdentagarðinum, uppi á 9. hæð. Urð- um við víst öll hvíldinn.i fegin, er þangað kom, og sváfum vært til morguns. Við vöknuðum árla morguns mánudaginn 21. júní og varð fyrst fyrir að líta til lofts og átta. Úti blöstu við víðir leikvellir, skógar- lundir og hús. Hlýju sumarlofti andaði inn um gluggana. Það var Goðasteinn 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.