Goðasteinn - 01.06.1977, Page 50

Goðasteinn - 01.06.1977, Page 50
m.ikil breyting að hverfa á nokkrum klukkutímum frá svala Islands inn í miðsumar Washington borgar. Ég hrósaði því happi yfir sólar- lausri morgunstund með helliskúrum annað veifið, með þeim mun skúranna að heiman að regnið var hlýtt. Dagana, sem við dvöldum í Washington, komst hitinn allt upp í 35° C og loftið áberandi rakt. Við þær aðstæður er auðvelt að verða þreyttur, jafnvel slappur, en þó held ég að við, íslensku gestirnir, höfum ekki staðið okkur verr en gestir suðrænni landa. Georgstown háskólinn, sem við dvöldum í, er elsti katólski há- skólinn í Bandaríkjunum, með sögu frá 1789, stofnaður það ár af John Carroll. 1 dag eru þar við nám yfir 10 þúsund stúdentar. Há- skólabyggingarnar eru margar og stórar og bera flestar fornan svip, þótt ekki séu gamlar. Minna þær margar á gotneskar hallir Evrópu, rismiklar og fagrar, hlaðnar úr höggnum steinum. Elst er Old North, mikil bygging, byggð úr rauðum múrsteini 1794- Háskólabókasafnið er mjög nýtískuleg og fögur bygging og ber í svip sínum form op- innar, margblaða bókar. „Matur er mannsins megin“. Gestir Smithsonian borðuðu í matsal stúdentagarðsins og áttu stuttan spöl að ganga milli húsa. Gátu mörg hundruð manns setið þar að borðum í einu og afgreiðsla í eld- lnisi gekk mjög greitt. Var þar hægt að velja um rétti og maturinn var í einu orði sagt mikill og góður. Ekki er fjarstætt að segja að í matsalnum gæfi að líta allar þjóðir og kynkvíslir jarðarinnar og margir voru þar búnir litskrúðugum þjóðbúningum, ekki síst svert- ingjar frá Afríku, en með okkur voru þarna m. a. fulltrúar frá Gana, geðþekkt og fallegt fólk. Yfir öllu var blær félags og samheldni. Fulltrúar Færeyinga mættu í Harbin Hall að morgni mánudags- úis. Fengu þeir samliggjandi herbergi við okkur og herbergisféiagi minn varð Bárður Jákubsen safnvörður og kennari í Þórshöfn. Aðrir fulltrúar Færeyinga voru Högni Mohr hafnarstjóri í Þórshöfn og kona hans Anna Bertha, Niklas Niklasen frá Koltri, bátasmiður í Þórshöfn, og kona hans Elisabeth. Urðum við öll fljótt eins og ein fjölskylda og get ég ekki búist við að fyrirhitta nokkurn tíma geð- þekkara fólk en þessa frændur okkar frá Færeyjum. Fyrir hádegi var haldinn fundur með okkur öllum norrænu full- trúunum, þar sem stjórnendur og sérfræðingar Smithsonian ávörp- 48 Goðasteinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.