Goðasteinn - 01.06.1977, Blaðsíða 51
uðu okkur, buðu okkur velkomna og skýrðu fyrir okkur skipulag
og þýðingu þeirrar hátíðar, sem við áttum að starfa við næstu daga.
Þarna töluðu t. d. Alan Lomax, sem stóð að stofnun þjóðlagasafns
Þingbókasafnsins í Washington og starfar nú við Columbia háskól-
ann, þekktur þjóðlagasafnari í Ameríku og Evrópu, frú Bess Lomax
Hawes, en í þjóðháttafræði hefur hún m. a. safnað og staðið að út-
gáfu á heimildum varðandi menningararf svertingja í Bandaríkj-
unum. Gordon Tracic hef ég áður getið um. Hann stofnaði þjóð-
dansafélagið Scandia í Seattle 1949 og átti hvað mestan þáttinn í
að beina för norrænu þjóðháttahópanna vestur til Seattle. Síðast en
ekki síst vil ég nefna frú Shirley Cherkaskv, en hún hafði yfirumsjón
með skipulagningu og framkvæmd allrar dagskrár hátíðarinnar og
vann starf sitt af mikilli prýði og einstakri velvild í garð þátttakenda.
Stjórncndurnir skýrðu tilganginn með þjóðháttahátíðum Smith-
sonian safnsins. Hátíðin 1976 var hin 10. í röðinni og sérstaklega
til hennar vandað á hátíðarári. Auk skemmtunar og almenns fróð-
leiks, sem þessar hátíðir láta í té, þá hafa þær mikið gildi fyrir varð-
veislu og útbreiðslu þjóðhátta og þjóðlegrar menningar.
Eftir hádegið var ekið á safnsvæðið, sem var að kalla í hjarta
borgarinnar í miklum almenningsgarði á bakka Potomac fljótsins.
Rétt steinsnar í burtu er marmarahöllin, scm reist var t.il minningar
um Abraham Lincoln, og nokkru fjær ber minnismerki Washingtons
við himinn. Skammt var einnig að ganga um eina af brúm Potomac
fljótsins í Arlington kirkjugarðinn. Okuleiðin frá Georgstown há-
skólanum var í senn fróðleg og fögur, þar sem farið var um gömul
og ný borgarhverfi. Margar gömlu göturnar eru undrafagrar, fjöl-
mörg íbúðarhús 19. aldar standa óbreytt, einatt listaverk að ytra
formi og skrúðgræn tré og blómstrandi runnar og blómabeð gleðja
hvarvetna augað. Ekið var einnig hjá víðþekktum byggingum, en í
svipinn er líklega engin þeirra frægari en Watergate.
Hátíðin sjálf fór fram á bersvæði og í tjaldbúðum. Norðurlanda-
þjóðirnar voru þar í sínu hverfi. Skammt í burtu voru svo fulltrúar
Ghana og Jamaica og nokkru fjær voru þjóðháttadeildir heima-
manna. f sérstakri tjaldbúð var afgreiddur matur til þátttakenda og
að öllu öðru vel fyrir þeim séð.
Fyrsti dagurinn var fremur rólegur. Um kvöldið bættist nýr vinur
Goðasteinn
49