Goðasteinn - 01.06.1977, Page 54
arhjólinu og bar ckki á öðru en hann skilaði hlutverki sínu með
sóma. Þarna voru einnig í sýningu margir og góðir hlutir úr ull,
ásamt ýmsu öðru og var sú kynning öll færeyskri þjóðmenningu til
sæmdar. Á öðrum stað var nokkur kynning á heimilisiðnaði hinna
Norðurlandanna, einkum Finna, á vegum Norðurlandabúa í Banda-
ríkjunum. Norræn matargerð var kynnt og kom hvert landanna þar
fram með rétti, sem með einhverjum hætti mátti teljast einkenn-
andi fyrir þau.
Undir öllu þessu hljómaði svo hin norræna dansmúsik frá pöll-
um og tjöldum og gestir og heimamenn stigu þjóðdansa af miklu
fjöri. Þarna voru einnig mættir margir fulltrúar hinnar gömlu fiðlu-
tónlistar vestan frá Seattle, Minnesota og víðar að og lögðu góðan
hlut til hátíðahaldanna.
Hópurinn litli frá Færeyjum hafði í fullu tré við hinar Norður-
landaþjóðirnar í menningarkynningu. Fimm saman stigu þau fast
á fjöl og sungu við raust gömul danskvæði. Högni Mohr var þar
forsöngvari af íþrótt. Arfur Færeyinga í dansi og sagnakvæðum er
aðdáunarverður. Mörg kvæðin eru í röð þess sem fegurst hefur ver-
ið ort á norræna tungu. Hin einfalda, taktfasta hrynjandi í dansi og
söng hrífur hugann, dansandi mannhringurinn er ein heild, talandi
tillit berast frá forsöngvara og frá manni til manns, allt líkt og
gleymist annað en samhugurinn í þessum þrönga hring. Mér duttu
í hug orð skáldsins um „galdur og kveðandi djúpt inn í heiðninnar
rökkri“ og þó átti hvíti-Kristur hér heima, því öll höfðu skáldin
gömlu gengið himnakónginum á hónd. ,,Guð mun ráða, hvar við
dönsum næstu jói!“
Þær komu stundir á danspalli Færeyinga vestur í Washington að
öllum var gefinn kostur á að ganga í dansinn og varð þá fótaburður
mikill en söngurinn varð áfram söngur fárra. Ég öfunda Færeyinga
af þessum dýrmæta menningararfi. Þeir eiga einnig því láni að
fagna að eiga forkunnar fagran þjóðbúning, karlar og konur, og
fátt setur meiri svip á mannfagnað en fagur þjóðbúningur.
Hóparnir frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi voru
cngu síður góðir boðberar þjóðmenningar, aðeins í nokkuð einhæfu
formi- Mikið tækifæri til landkynningar voru þessir júnídagar
Washington.
52
Goðasteinn