Goðasteinn - 01.06.1977, Blaðsíða 64
hverjum mánuði. Sérstök hátíðarsamkoma er alltaf haldin á sumar-
daginn fyrsta. Litið er til með veikum samlöndum. I Seattle starf-
aði áður félagið Vestri. Bókasafn þess er nú geymt í Washington
háskólanum í Seattie. The Icelandic Club tók við af Vestra. Félagið
heldur tvo hátíðisdaga á hevrju sumri, 17- júní og 2. ágúst. I eigu
þess eru skautbúningur, upphlutur og peysuföt. Félagið starfar í
samvinnu við hin norrænu félögin í Seattle og halda þau uppi nor-
rænum sýningum með vissu millibili.
íslenskur karlakór starfaði um mörg ár í Seattle. Heyrði ég fagr-
an söng hans af segulbandi heima hjá Ray Olason.
Seattle er mikil menningarborg, en mesta menningarstofnunin er
Washington háskólinn, sem margir íslendingar hafa sótt nám sitt til.
Háskólinn stendur í afar fögru umhverfi og hefur mikið land til
umráða. Háskólabyggingarnar eru margar og fagrar og standa dreift.
Ray Olason gerði mér það til gleði og fróðleiks að aka með mig
um háskólasvæðið. Saman gengum við svo milli húsa og litum inn
á nokkrum stöðum. Þarna hafði Ray numið sín verkfræðivísindi
og er honum staðurinn kær. Washington háskólinn var stofnaður
1864. Engar byggingar hans eru því að marki gamlar, en sumar
þeirra bera þvílíkan ellisvip sem þær væru aftan frá miðöldum. Við
komum inn í einn lestrarsal stúdenta, mikla og glæsilega byggingu
byggða í gotneskum stíl, svo að vel hefði getað verið hluti af dóm-
kirkju eða höll frá miðöidum. 1 háskólanum má segja að öll vís-
indi nútímans eigi athvarf og í tengsium við hann er rekið mikið
og vel búið sjúkrahús. Allt er þarna með glæsibrag innan og utan
dyra.
Doris tók að sér að kynna okkur félagana frá Islandi fyrir versl-
un og verslunarháttum borgarinnar. Komum við saman í geysimikla
verslunarmiðstöð, þar sem hægt er að fá flest milli himins og jarðar
eins og gamla fólkið sagði. Við reikuðum þar um lengi og sáum þó
fátt af því, sem þar má sjá. Alúð og kurteisi mæta manni í öllum
skiptum við afgreiðslufólk. Verðið á mörgu var ekki fjarlægt vöru-
verði heima og líklega söm þörfin þar og hér að hafa hóf á kaupum.
Hádegisverð okkar snæddum við í stórri og vel búinni matsölu í
tengslum við verslunarmiðstöðina-
Seattle er ekki borg háhýsa og þó eru þau farin að setja svip
62
Goðasteinn