Goðasteinn - 01.06.1977, Page 66
og ók mér til heimilis síns í Bellevue í útborg Seattle. Þar var mér
vel fagnað af húsfreyjunni, og fjögra ára syni þeirra hjóna, og við
bættist enn ein óvænt gleði. Hún Gógó frænka mín frá Varmahlíð
hafði beðið mig fyrir hvern mun að reyna að hitta vinkonu sína
Öglu Jacobscn, sem um 30 ár hefur búið vestur í Seattle, og flytja
henni kveðju sína. Hver haldið þið svo að hafi komið í setustofuna
til móts við gestinn önnur en Agla Jacobsen og með henni systir
hennar, Tove, móðir Roy Walters, en hún hafði þá verið búsett í
Bandaríkjunum í 45 ár og átti nú heima í Oregon.
Þær systur eru dætur Egils Jacobsen kaupmanns í Reykjavík og
fyrri konu hans, Sigríðar, dóttur Einars og Margrétar Zoega. Tove
hafði fá tækifæri til að tala íslensku öll árin vestra en átti enn undra-
góð tök á málinu. Roy sonur hennar hefur tvisvar komið til íslands.
Hann hefur í frístundum sínum numið íslensku við Washington
háskólann og les og skilur hana mætavel. Kona hans er af írsku
bergi brotin. Hafði ég þá ánægju að hitta móður hennar, indæla
konu á efra aldri. Kathy hefur einu sinni komið til Islands. Stór
garður var við hús þeirra hjóna. Var þar allur gróður í blóma og
greinarnar á eplatrjánum að byrja að svigna undan þunganum.
Plómurnar voru einnig á góðri leið til að þroskast og ýmis annar
jarðargróði lofaði góðri uppskeru. Þrjár hænur klökuðu í girðingu
sinni í garðinum og þar sá ég í fyrsta sinn reglulega brún hænuegg.
ísland á hlut sinn inni á heimilinu. Uppi á vegg þar hékk útsaums-
mynd Öglu Jacobsen eftir fyrirmynd í Þjóðminjasafninu, íslenskar
bækur voru í bókaskáp húsbóndans og íslenskur söngur hljómaði
frá plctuspilaranum. Músik á heima í húsinu og píanó og harmoníum
stóðu þar saman í góðu samfélagi.
í viðbyggingu íbúðarhússins sá ég stórt Íslandslíkan- Hafði Roy
nóg að gera við að færa það í lag fyrir íslensku sýninguna í Seattle
Center.
Daginn eftir, þjóðhátíðardag Bandaríkjanna 4. júlí, óku Roy
og Kathy mér til Marymoor Park, þar sem við íslensku félagarnir
unnum frá kl. 1 til kl. 6 í dásamlegu veðri. Var þá fjölmenni mikið
í garðinum og margt fróðlegt að sjá og skoða. Þarna voru sýnd
ótrúlega fjölbreytt vinnubrögð gamalla handiðna. Kona af norskum
ættum spann á skotrokk og fjórar dætur hennar voru með rokka í
64
Goðasteinn