Goðasteinn - 01.06.1977, Blaðsíða 71
okkur gott tækifæri til að sjá til lands cg byggðar. Farið var framhjá
mikilli skipasmíðastöð og hvarvetna var líf og framför. Ferjur
ganga alla daga út og inn um Seattle höfn, þar á meðal sú, sem nú er
stærst í heimi og tekur 2000 farþega. Auðveldar samgöngur á landi
og sjó eru norður til Vancouver og byggðanna í British Columbia,
þar sem ég átti vinakynni og heimboð, en enginn tími var til að
sinna því og heimför var á næstu grösum.
Að sjóferð lokinni var ekið með okkur í Ivars Salmon House,
eða laxahús Ivars á strönd Union vatns. Þetta er víðþekkt veitinga-
hús byggt úr sedrusviði og allar skreytingar innan veggja sóttar í
list Indíána í Washington ríki og British Columbia, en hún er
heimsþekkt m. a. vegna hinna miklu totem súlna þeirra, sem margar
cru enn varðveittar. Ivar, sem húsið er kennt við, er umsv.ifamikill
veitingahúseigandi í Seattle, sænskur að ætterni.
Laugardaginn 10. júlí var efnt til mikiilar skrúðgöngu Norður-
landaþjóðanna um götur í nánd norrænu sýningarinnar í Seattle
Center. Gekk hver þjóð í sérskildum hóp undir hljóðfæraslætti og
söng og allir þátttakendur voru kiæddir þjóðbúningum. Island átti
þarna 14 fulltrúa. Rákum við Kristinn Gíslason þar lestina klæddir
lánsbúningum frá Þjóðleikhúsinu. Urðum við þess varir að sumir
karlmenn af íslenskum ættum þar vestra renndu til þeirra hýru auga.
Að kvöldi 10. júlí tóku Helgi Thordarson og Charlotta mig heim
með sér til gistingar. Helgi veitir forstöðu stórri skipasmíðastöð og
viðgerðastöð, sem rekin er af eigendum fiskibáta í Seattle, manna,
sem sækja sjó allt norður til Alaska. Hafði ég áður hitt einn af
starfsmönnum Helga, norskan að ætt, og bar sá honum hið mesta
sæmdarorð. Þau hjón, Helgi og Charlotta, búa í glæsilegu húsi rétt
við innsiglinguna til Seattle. Var fagurt að líta út á fjörðinn að
rnorgni næsta dags- Fjöldi smárra báta. var þar vítt og breitt og
margir efalaust að draga björg í bú. Stór skip sigldu þarna út og inn.
Dráttarbátar voru þar á ferðinni með hlaðna flota í eftirdragi, á
leiði til olíulindasvæðanna á íshafsstrand Alaska, cn þangað er
skipum ekki fært, fyrr en líða tekur á sumar.
Helgi og Charlotta fóru með mig í morgunmessu í kirkju sína, en
eftir hádegið fóru þau með mig í Marymoor Park, þar sem slá
skyldi botninn í þjóðháttasýningu okkar. Margrét Líndal og Krist-
Goðasteinn
69