Goðasteinn - 01.06.1977, Side 75
hifigað til að Island haldi hlut sínum í kynningu þjóðanna vestur í
Seattle.
Margt getum við gert í því að styðja að bakinu á þeim, sem nu
vinna af áhuga og fórnfýsi að því að halda þarna uppi merki okkar
svo að eftir sé tekið- Auðvelt er að senda héðan margþætt fræðslu-
og skemmtiefni í tali, tónum, myndum og bókum. Gæti slíkt efni
tengst safni eða hinni miklu menningarstofnun, Washington háskól-
anum sem nú þegar varðveitir nokkurt safn íslenskra bóka og miðl-
ar kennslu í íslensku. Ferðir listamanna á þessar fjarlægu slóðir
eru dýrar en myndu borga sig í einhverri mynd. I góðu minni þar
vestra eru heimsóknir Þjóðleikhússins, Karlakórs Reykjavíkur og
Lúðrasveitar Revkjavíkur. Væntanlegt norrænt safn í Seattle þarf
að vcra með myndarlega íslenska sýningardcild og gripir til hcnnar
gætu komið til nokkurra muna frá söfnum og einstaklingum hér
heima. . Var ég svo djarfur að segja við Harald Johnson, er hann
sýndi mér væntanlegt safnhús í Ballard: ,,Ef við heima á Islandi
gctum í einhverju hjálpað ykkur, þá látið okkur vita.“
Kirkjan er öflug stofnun í Bandaríkjunum. Hjá miklum fjölda
manna er það sjálfsagður siður að ganga í kirkju á hverjum sunnu-
degi og menn leggja miklar fórnir til kirkju sinnar. í Seattle vissi
ég dæmi þess að hjón með meðaltekjur á þarlendan mælikvarða
lögðu um 2000 dollara til kirkju sinnar, og þætti það víst drjúgur
skattur hér á íslandi.
Charlotta og Helgi Thordarson tóku mig með sér til messu í kirkju
sinni, Calvary lúthersku kirkjunni við 23. stræti í Seattle. Að henni
stendur fámennur söfnuður. Áberandi mörg ísiensk nöfn eru í safn-
aðarskránn.i. Þetta er kirkja vina okkar Tana og Sigríðar Bjornson,
Ray og Doris Olason, Ingibjargar Scheving, Jóns og Guðrúnar
Magnússon, Steinþórs og May Hermann og Ethel Vatnsdal, svo að
dæmi séu nefnd. Söfnuðurinn á nýbyggða glæsilega kirkju. Vel
búinn samkomusalur er í kjallara kirkjunnar. Þar er einnig komið
fyrir altari og nokkrum helgigripum eldri kirkju safnaðarins. Stórt
eldhús er tengt samkomusalnum. í hliðarálmu kirkjunnar eru skrif-
stofa, bókasafn, fundaherbergi og fleiri vistarverur. Látlaus kross
hangir yfir altari- Sjálft er það prýtt að framan með fagurri, upp-
hleyptri mynd af guðslambi.
Groðasteinn
73