Goðasteinn - 01.06.1977, Page 77

Goðasteinn - 01.06.1977, Page 77
hjálparstarfi innan safnaðarins og utan. Ef einhver er veikur, gam- all eða hjálparþurfi, er með honum fylgst og honum liðsinnt svo sem föng eru á, m. a. er hringt til gamals og einmana fólks á vissum tímum t.il að vita um ástæður þess. Þetta er t. d. gert, þegar vitað er að fólk hefur nýlokið við að fara í bað, og sé ekki svarað, er brugðið við til að vita, hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis. Ég varð þess stundum var að hringt var til Doris gestmóður minnar að nóttu og komst að raun um að slíkra hringinga gat hún vænst á öllum tímum sólarhringsins. Hún er lærð hjúkrunarkona en hefur lagt niður launað starf á sjúkrahúsi. I stað þess sinnir hún ólaunuðu hjálparstarfi hjá fólki út um borgina. I ófárra hendur hefur hún haldið meðan lífið var að fjara út. Gömlu hjónin, sem bjuggu ein síns liðs í næsta húsi v.ið Ray og Doris, áttu áreiðanlega hauk í horni, þar sem hún var. Það skynjaði ég í orðunum, sem hún hermdi mér eftir þeim, er þau komust að raun um að heimilið átti von á enn einum gesti heiman frá íslandi, gesti, sem hlaut að valda tcfum: „Ertu nú enn að fá íslending, ertu ekki búin að fá nógu mikið af þeim í bili?“ 1 vegarnesti heim til íslands höfðum v.ið fjöld góðra minninga. Tvennt er þar þyngst á metum, annarsvegar alúð allra, sem við áttum eitthvað saman við að sælda, hinsvegar allt, sem fyrir augu bar, í starfi við að varðveita og efla gamla þjóðmenningu, og ein- mitt á því sviði er okkur íslendingum þörf mikillar vakningar. Erfitt er að sönnu að stefna gegn straumi tímans. Afskiptaleysi okkar af náunganum, sem við mætum á förnum vegi, læt ég liggja milli hluta. Afskiptaleysi okkar gagnvart gamalli þjóðmenningu er mér í svipinn meira áhyggjuefni. Til hvers getum við gripið, þegar góða gesti ber að garði og sagt: „Þetta er gömul þjóðleg menning“- Við eigum að sönnu gamla þjóðlega menningu í söfnum og á bók- um, til nokkurra muna í gömlum húsum en harla litla í lífi, athöfn- um og siðurn fólksins út um byggðir landsins. Menning þjóðanna breyt.ist auðvitað frá degi til dags og verður stöðugt alþjóðlegri, ef svo mætti segja. Flestar menningarþjóðir nútímans reyna þó að varðveita menningararf sinn t. d. í iðkun tónlistar þar sem um hönd eru höfð þjóðleg hljóðfæri og leikin og sungin gömul þjóðlög. Ákveðin rækt er lögð við þjóðbúninga, gömlum leikjum og dönsum Goðasteinn 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.