Goðasteinn - 01.06.1977, Page 96

Goðasteinn - 01.06.1977, Page 96
naut og skyrtunna. Af þessum tolli segist að Merkurmenn hafi haft þriðjung, fyrir troðning. Þennan toll skaffaði af Halla Grímsdóttir, sem segir þá hún var á Kirkjubæ." Heimildarmaður að þessu er Margrét undir Staðarfelli. Ekki sést árfært, hvenær hún gefur þessar upplýsíngar, en miklar líkur eru til þess að þá hafi hún búið undir Staðarfelii í Klausturseli og einnig hitt að selstaða hafi lagst niður, er Halla Grímsdóttir skaffaði af tollinn. Margt bendir til þess að í Klausturseli hafi lengi haldist byggð, miklar húsarústir, og meiri grasvöxtur niður undan selinu eins og þar búi að fornri rækt. f sálnaregistri sr. Jóns Steingrímssonar 1783 eru talin tvö heimili í Klausturseli. Vera má að annað heimilið hafi þó verið við Systravatn. Um það er enn sagt: „Upp í Seli“ eða ,,Ég fór upp í Sel“- Á unglingsárum mínum heyrði ég eldra fólk, sem vcrið hafði í nágrenni við Klaustrið eða í vinnumennsku þar fyrir og um aldamótin síðustu oft minnast á selið og nefndi það alltaf Brúnasel, ekki Klaustursel, meðal annarra maðurinn, sem síðast hafði þar heimili en var ráðsmaður hjá sýslumanninum á Klaustri. Að lokum má aðeins minnast á Geirlandssel. Séra Jón Steingríms- son getur þess í riti sínu um eldgosið í Lakagígum að vorið 1783 hafi tveir bændur flutt sig frá vel viðurværilegum býlum og farið í Geir- landssel. Áður hafði einum manni verið leyft að búa þar nokkur umliðin ár vegna frómleiks síns. Nú urðu þessir nýfluttu menn að flýja undan eldinum, sem kom upp skammt frá bæjardyrum þeirra. Séra Jón orðar þetta skýrt og skemmtilega: ,,En hann, sem sér yfir allra manna verk og vissi best þeirra tilgang, dreif þessa samlags- bræður með þessum loga í burtu, fyrst allra úr þessu plássi, aðskildi þá að síðustunni að öllum samráðum, verkum og sambúð.“ Frá barnsárum mínum man ég eftir fólki, sem mundi fólk, er lifði móðuharðindin. Mjög var þessu fólki tíðrætt um sagnir af at- burðum frá þeim tíma. Öllum sögum þess bar saman um að býli þetta hafi verið í afrétti norður eða norðvestur af Galta. Sumir nefndu Varmárfell í þessu sambandi, í fyrstu hefði það verið nefnt Varmársel en seinna Geirlandssel. Það bendir til þess að þar hafi um eitt skeið verið selstaða frá Geirlandi. Á þessum tíma hefur Geirland átti land að Hellisá. Geirlandshraun bæri ekki þetta nafn ef það hefði ekki fylgt jörðinni. Má segja að óþarflega langt væri 94 Goðasteinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.