Goðasteinn - 01.06.1977, Side 114

Goðasteinn - 01.06.1977, Side 114
um 2500 f. Kr. kemur svo ný bylgja innflytjenda til eyjanna og þá frá sænska meginlandinu. Þessir síðari íbúar kunnu einnig dável til verka, svo sem margir prýðilegir fundir sanna. Þeir lifðu aðal- lega á veiðum og þá einkum selveiðum, en tóku þó smám saman að yrkja jörðina og lifa af landbúnaði að einhverju leyti. Á brons- öld, sem hófst á Norðurlöndum um 1500 f. Kr., voru Álandseyjar orðnar harla þéttbýlar og virðist þar hafa verið mikil velmegun. Um það vitna ríkulegir fornleifafundir og myndarlegar steindysjar. Veruleg hnignun og fólksfækkun virðist síðan verða á eldri járn- öld, en á yngri járnöld, sem hófst um 500 e. Kr. breyttist ástandið aftur til batnaðar og fólki fjölgaði á ný. Enn meiri framfarir verða svo á víkingaöld, sem náði frá áttundu til elleftu aldar. Benda fornleifafundir frá þeim tímum til mikilla samskipta við Svíþjóð og einnig til landapna austan Eystrasalts, enda má telja líklegt að Álendingar hafi átt drjúgan þátt í víkingaferðum og viðskiptum í Garðanki. Um ófrið og árásir við sjávarsíðuna á þessum öldum vitna fjölmargar rústir af fornum virkjum á eyjum og útnesjum. Álandseyjar voru frá örófi alda sænskt land, þar sem norræn eða sænsk tunga var töluð. En það sænska land hafði þó frá því fyrsta talsverða sérstöðu, því að Álendingar stjórnuðu jafnan málum sín- um sjálfir og æðsta valdastofnun þeirra var landsþingið, er hélt fundi sína á fornhelgum þingstað í Saltvík. Fram eftir miðöldum var heiðin trú við lýði á eyjunum, svo sem annars staðar á Norður- lönd, en kristin áhrif bárust þó þangað snemma og jafnvel fyrr en til sænska meginlandsins. Kristni virðist hafa verið orðin allföst í sessi þegar á 11. öld og elstu steinkirkjur eyjanna eru frá 12 öld. Standa þær enn að stofni til og eru allauðugar af fornum minjum. Á 13. öld lögðu Svíar drjúgan hluta Finnlands undir sig og voru þá Álandseyjar gjarna taldar tii þess hluta ríkisins. Reistu Svíar virki mikið á Kastalahólma til varnar gegn þýskum víkingum í Eystrasalti. Hafa marg.tr sænskir fyrirmenn setið í kastala þessum í aldanna rás og gætt hagsmuna Svía bæði á Álandseyjum sem og í Finnlandi og oft hefur þar kveðið við vopnabrak, er óvinir leit- uðu á að utan. Virkið á Kastalahólma brann að mestu um miðja 18. öld, en hlutar þess standa enn til augnayndis fyrir ferðamenn á sumrin. 112 Goðasteinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.