Goðasteinn - 01.06.1977, Page 116
á norðurslóðum. Sú dýrð stóð þó ekki lengi, því að Bretar og Frakk-
ar réðust á virkið í Bómarsundi í Krímstríðinu 1854 og sprengdu
það í loft upp. Svíar gerðu tilraunir til að fá Álandseyjar afhentar
sér í lok Krímarstríðsins, en það tókst ekki. Hins vegar var þá samið
um að friðlýsa þær fyrir hernaði og hernaðarmannvirkjum. Var
samningur þessi upphafið að hlutlevsi eyjanna, sem nú er almennt
viðurkennt. Eftir stríðið hófu Rússar undir forystu Alexanders 2.
keisara að gera margvíslegar umbætur á Álandseyjum. íbúarnir
fengu fullt athafnafrelsi. Stofnuð voru útgerðarfélög, trygginga-
félög, sparisjóðir og fleira og síðan hafist handa um að reisa kaup-
stað og þar með höfuðborg fyrir eyjarnar í Maríuhöfn, svo sem.
fyrr sagði.
Heimsstyrjöldin 1914-18 varð harla örlagarík fyrir Álendinga
cins og margar aðrar þjóðir. Þegar lcið á ófriðinn og rússneska keis-
aradæmið tók að liðast í sundur, kom fram ákveðinn vilji hjá Álend-
ingum um að sameinast Svíþjóð, enda höfðu þeir alltaf litið á sig
sem Svía. Hinn 20. ágúst 1917 komu saman á þing í Maríuhöfn
fulltrúar frá öllum sveitarfélögum eyjanna og samþykktu þar áskor-
un til konungs og ríkisstjórnar Svíþjóðar um að hefja aðgerðir til
að sameina Álandseyjar hinu forna sænska móðurlandi. En í Finn-
landi, sem lýsti yfir sjálfstæði sínu 6. desember 1917, reis sterk and-
staða gegn þessum áformum á þeim forsendum að eyjarnar hefðu
talist vera hluti af Finnlandi fyrrum. Varð þetta mikið átakamál og
létu Finnar jafnvel fangelsa helstu leiðtoga Álendinga um skeið.
Deilurnar héldu áfram um árabil og sýndist mörgum að samkvæmt
yf.irlýstum ákvæðum um sjálfsákvörðunarrétt þjóða og þjóðarbrota
skyldu Álendingar fá þeim vilja sínum framgengt að land þeirra
sameinaðist Svíþjóð og studdu Svíar þá drengilega í því efni svo
sem við var að búast. En allt kom það fyrir ekki, því að Þjóða-
bandalagið úrskurðaði loks 24. júní 1921 að eyjarnar skyldu fylgja
Finnlandi með ákveðnum skilyrðum um hlutleysi, þjóðarrétt, tungu-
mál og stjórn eigin mála Álendingum til handa. Tók eyþjóðin þess-
um kostum með stillingu og nýtti þá svo vel sem verða mátti. Þjóð-
kjörið landsþing kom saman til fyrsta fundar hinn 9. júní 1922 og er
það síðan þjóðhátíðardagur Álendinga.
Grundvöllurinn undir þjóðarrétti og sjálfstjórn Álendinga er
114
Goðasteinn