Úrval - 01.05.1979, Page 9
ÞEGAR RÚSSAR SKUTU FERÞEGAÞOTUNA NIÐUR
7
CANADA
/ Anchor«0e
'álo + Norfh
J Jf 0: Poie
AflCT/C '
JF fRANZ
'S.J03EF
J LAND
iPITSBEííq;
Wui-mán.k
80V1ET
Það neistaði úr rofnum rafleiðslum og
það slökknaði á ljósunum. Beiskur
reykur barst um farþegarýmið. Hinir
særðu veinuðu og blóð rann fram
snarhallandi gólfíð. Skyndilegur loft-
þrýstingsmunurinn I klefanum ætlaði
að sprengja hlustir fólksins og það
leið yfir marga.
Kim flugstjóri barðist við að ná
valdi á vélinni aftur og tókst að rétta
hana nokkuð af. En af því að vélin var
enn hættulega hátt og loftþrýstingur-
inn allt of lítill, stakk hann henni
aftur. Samtímis þreif Chu Myong-
yong, flugþjónn, hljóðnemann og
tilkynnti farþegunum, fremur af
fífldirfsku en nákvæmni, á
kóreönsku, japönsku og ensku: ,,Það
er allt x lagi með flugvélina. Farþegar
eru vinsamlega beðnir að vera rólegir
Punktalínan sýnir hina fyrirhuguðu
letð Boeing þotunnar — heila
örvalínan þá leið sem hún virðist hafa
farið.
og samvinnuþýðir við áhöfnina.” En
á kóreönsku sagði hann við þann
hluta áhafnarinnar, sem starfaði
meðal farþeganna: „Búið ykkur
undir nauðlendingu! ’ ’
í 3 þúsund feta hæð rétti Kim
flugstjóri vélina af og athugaði sinn
gang. Fyrir utan götin á bolnum
hafði sprengingin rifið vinstri væng-
broddinn af og um þrjá metra af
fremra vængbarðinu. Einn farþegi var
látin. Tveir ungir japanskir læknar
voru önnum kafnir við skin frá vasa-
ljósi að reyna að bjarga Sugano með
því að stöðva blóðrás hans, og notuðu