Úrval - 01.05.1979, Side 65
ALEIN Á EYDISLÓÐ
63
OIHStK\ IJtStK!
" Wtll/
M N^GIenayR-
GUNHARRtl
|r*HH .HVVAY
WaH)urIon
*íflYw Cunyu
^^AUSTRAtlAs
Kortið sýnir leið Robyn frá Alice
Springs uppi undir hægra homi til
Hamelin Pool vinstra megin. Litla
kortið sýnir hvaða hluti Ástralíu er
sýndur á því stærra.
Tvöhundruð metrum framundan
eru þrír stórir tarfar, augljóslega
graðir, og hafa fengið veður af
Zeleiku. Ég tek riffilinn varlega úr
hulstrinu, hleð hann og spenni.
Þegar aðeins eru um 30 metrar í milli,
miða ég og skýt. En ég er ekki góð
skytta. Það þarf fjögur skot til að fella
forystutarfinn. Þá luntast hinir frá.
Myrkrið skellur á. Ég hefti
úlfaldana mína og reyni að halda
þeim hjá mér. Alla nóttina heyri ég í
törfunum umhverfis okkar.
I dögun stendur annar þeirra um
fímmtíu metra frá okkur. Ég ákveð að
skjóta hann ekki, nema mér og
dýrunum mínum standi beinlínis ógn
af honum. Ég næ í Dookie, Zeleiku
og Goliath og ætla svo að ná Bub. En
hann rýkur af stað með villitarfinum
valhoppar þótt hann sé heftur. Ég
reyni heilan klukkutíma að ná
honum en get það ekki, villitarfurinn
er alltaf fyrir. Þá er ekki nema um eitt
að velja. Það er Bub eða tarfurinn. Að
þessu sinni miða ég beint, þótt í
gegnum tár sé.
71. dagur. Ganga, ganga, ganga,
yfír einn sandhól, síðan annan. Við
eigum ekki nema um 30 lítra af vatni
eftir. Samkvæmt kortinu mínu er
borhola og vatnsgeymir framundan.
Ætla þessir sandhólar aldrei að
enda? Hvernig gat mér hafa þótt þeir
fallegir einu sinni? ,,Guð, ég bið þig,
láttu borholuna vera handan við
næstu hæð. Nei? Jæja, þá næstu.
Hún verður að vera bak við næstu.
Nei. . ”
Svo komum við upp á síðustu
hæðina og landið sléttaðist út.
Grænn blettur sindraði í fjarska.
örvæntingin rénaði og ég fór að
hlæja. Innan stundar fengu
úlfaldarnir að drekka. Diggity drakk,