Úrval - 01.05.1979, Page 99

Úrval - 01.05.1979, Page 99
DANS HÖRMUNGA — DANS VONA 97 gengið var fram hjá við nokkrar utan- landsferðir urðu svo stífir, að þeir gátu ekki dansað. En það var fleira, sem til koma. Ég vissi að ég myndi aldrei geta náð svo langt sem raunveruleg geta mín leyfði ef ég fengi ekki hin örfandi kynni sem fðlust I heiminum handan járntjaldsins. Árið 1966 hafði ég öðlast nægilegt vald á líkama mínum og sviðsframkomu til þess að geta túlkað tilfínningar mínar að vissu marki. En að undanskildum fáeinum þöglum hetjum, sem létu það yfir sig ganga að bestu verk þeirra væm eyðilögð, var enginn að skapa neitt nýtt í sovéskum ballett — einfaldlega af því engum var leyft það. Hver vestræni danshópurinn eftir annan sýndi að klassískur ballett bjó yfír tjáningargetu, dýpt og afli til þess að snerta áhorfendurna, þegar listamennirnir túlkuðu það sem þeir skynjuðu í raun og vem. En við þjónuðum pólitískri línu sem hafnaði einmitt hugmyndinni um persónu- lega tjáningu, kerfi, sem til þess er skapað að drepa sanna list. Þörfin til tjáningar jókst á sama hátt og þörf mín til þess eins að dansa hafði áður gert. En við því var ekkert að gera, bara að bæla hana niður. Eg unni því enn að dansa, sérstaklega ný hlutverk. Ég hélt mér saman og gerði málamiðlanir. En ballettinn var mér ekki lengur lífsstilgangur í sjálfu sér. Nú vissi ég sannleikann. Og ég vissi hvað ég myndi einhvern tíma neyðast til að gera. Bjarta meyjan 1 ágúst 1968 var mér boðið að sýna í hinum glæsilega Súlnasal t Moskvu. Eitt kvöldið var ég lítillega seinn til að hita upp, og kom þjótandi upp hvíta stigann. Gamall vinur minn, sem orðinn var listfræðilegur fram- kvæmdastjóri ballettsins í Perm, sem er borg í Úral, stóð uppi á stiga- skörinni. Hjá honum var dansmær, sem leit út eins og táningur, en samt fylgdi henni svalt öryggi þess, sem veit að hann er mikilvægur. Vinur minn kynnti hana sem nýbakaðan sigurvegara og gullverðlaunahafa af keppni í Varna 1 Búlgaríu. Gullverðlaun innan Sovétríkjanna eru alltaf ákveðin fyrirfram, og ævinlega veitt nýjum stjörnum mikil- vægra leikhúsa. Það þurfti fágæta hæfileika til að vinna til verðlauna einhvers staðar utan við Moskvu eða Leníngrað. Og að koma frá Úral, án þess að eiga sér langan pólitískan aðdragana, og vinna til verðlauna, var frábært afrek. Þetta var hún Galína litla Ragosína, Galja. Andlit hennar var eins fagurt og Björtu meyjarinnar (rússneskt balletthlutverk, sem túlkar fegurð og dyggð). Það glóði á gullið hárið. Ég fór beint inn í búnings- herbergi til að afstýra því að ég segði eitthvað kjánalegt. Næsta kvöld hafði ég upp á henni á hételinu þar sem flokkurinn hennar var að halda upp á síðasta kvöld sitt í Moskvu. Þegar ég kom, sá ég tár standa í augum hennar. Ásamt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.