Úrval - 01.05.1979, Qupperneq 117
DANS HÖRMUNGA — DANS VONA
115
þakka. Við vorum að fara, mcð
skuldabyrði sem við gátum aldrei
greitt.
Þessi sérkennilegi sálardoði
þaggaði niður þotudyninn. Við
flugum yflr Sovéskt land, þar sem
enn var hægt að kalla okkur til jarðar
hvenær sem var. Svo vorum við
komin til Varsjár, en við Galja gátum
enn ekki talað saman. Við vorum of
tóm.
E1 A1 flugvélin frá Vínarborg létti
næsta kvöld. Að þessu sinni héldumst
við Galja í hendur. Mig langaði til að
tala við hana í einrúmi. Mig langaði
að segja henni hve rangt ég hefði haft
fyrir mér frá upphafi. Það var ekki
aðeins að KGB og vinir mínir hefðu
vanmetið styrk hennar, heldur ég líka
— því ég hafði lagt allt of mikla
áherslu á reynsluleysi hennar í saman-
burði við mig. En auðvitað voru það
tilfinningar hennar, sem skiptu máli.
Sérhver tilraun til að sundra okkur
hafði fært hana nær mér. Þvílík
manneskja er von mannkynsins.
Tel Aviv var röð af ljósum meðfram
sjónum. Stóru dyrunum fremst á
þotunni var lokið upp fyrir okkur.
Milljónir stjarna glitruðu á himni, og
leifutljósin svöruðu að neðan.
Það var hópur fólks utan við vélina.
,,Þið eru komin heiml" hrópaði ein-
hver. Kossar þöktu andlit okkar.
Ævintýri, sem enda vel, gerast í raun
og veru. Ég var svo hamingjusamur
að ég varð að dansa.
Sirax eftir komuna til ísrael varð
Valery Panov fyrir áverka á fótarvöðva
vegna örmögnunar — og því næst
varð hann fyrir óheppni á listasviði
sínu. Án sérfrœðihjálpar til þess að
komast yfir örðugleikatímabilið gat
hann ekki höndlað þann frama á
dansbrautinni, sem hann hafði
fórnað öllu til að öðlast. Hann hafði
ekki glatað snilligáfu sinni, en varilla
farinn andlega.
I Leníngrað stðð hann á hátindi
líkamlegrar orku, þegar hann varð að
leggja dansskóna á hilluna. Nú, eftir
nærri fimm ár á Vesturlöndum, hefur
hann öðlast sköpunargáfuna á ný;
Hann hefur öðlast bókstaflega allan
sinn líkamlega styrk aftur og bætt
hvort tveggja með nýj:im, nœmum
túlkunum, og hefur auk dansins gerst
stórbrotinn dansahöfundur.
Þau hjónin dansa saman og hafa
nú komið fram í tíu löndum, meðal
annars sem sérstakir gestalistamenn
með ballett Berlínaróperunnar.
,, Valery hefur þjálfað leikræna
hæfileika sína dásamlega, ” sagði
Clive Barnes eftir að hafa horft á þau
hjónin koma fram með Berlínar-
ballettinum. ,,Og Galína sýnir öll
merki þess að vera að springa út sem
ein alfremsta dansmær heimsins. '’
★
Ý Ý Ý Ý Ý Ý
7jv 7|v 7|>T vjv
Sjúklingur við lækninn: Hvað er það þá í þetta sinn. Eitthvað sem
ég á að taka inn eða eitthvað sem ég á að hætta við?” K.K.