Úrval - 01.08.1982, Qupperneq 13
KUWAITER MÍDAS ARABARÍKJANNA
11
húsið, gólfin eru þakin indverskum
og persneskum teppum og húsgögnin
eru nýtískuleg frá Italíu, lág svo að
gestir geti auðveldlega komið sér fyrir
á gólfinu eins og bedúínar liðinna
tíma. En myndir á veggjunum eru
aðeins tvær. ,,Tjöld hafa ekki veggi,”
er orðtak sem skýrir málið.
Hussein og fjölskylda hans fara
einu sinni til tvisvar árlega til útlanda
eins og flestir Kuwait-búar. Yfirleitt
fara þau til Evrópu en þar hafa þau í
hyggju að koma sér upp öðru heimili.
Fjöldaflutningur úr landi er reyndar
þegar orðinn ákveðinn llfsmáti. I júní
og júlí, þegar hitinn er mestur, fer
verulegur hluti þjóðarinnar burt.
,,Hvað gerir fólk hérna meðan á hita-
skeiðinu stendur?” spurði ég eitt
sinn leigubílstjóra. ,,Ég hef ekki hug-
mynd um það,” sagði hann og yppti
öxlum, „vanalega er ég sjálfur í
París.”
Ojá, þetta er hið ljúfa líf. Jaber al-
Ahmad al-Sabah fursti hefur
nefnilega sjálfur tekið á sig ábyrgðina
af framtíðarvelferð sérhvers Kuwait-
búa. Hann er rétt rúmlega
fimmtugur að aldri, ljós yfirlitum og
skeggjaður og hefur áður gegnt
embættum fjármálaráðherra og for-
sætisráðherra og hefur verið drif-
fjöðrin í allri stjórnun Kuwait. Ali al-
Mousa, aðstoðarskrifstofumaður í
áætlanaráðuneytinu, segir: ,,Við
gerum okkur grein fyrir að olíu-
auðlindir okkar eru takmarkaðar. Þess
vegna verðum við að bregðast við
strax til að tryggja afkomendum
okkar örugga afkomu. ’ ’
Sjóðurinn handa kynslóðum fram-
tíðarinnar er einn af lyklunum í þess-
ari áætlun. Sjóðurinn tekur til sín
tíunda hluta þjóðarteknanna. Nú eru
í sjóðnum 23 milljarðar dollara.
Tekjum sjóðsins er varið til fjár-
festingar á Vesturlöndum í fast-
eignum, hlutabréfum og verðbréfum
og öðru þess háttar. Kuwait notar allt
umframfé sitt — það var sett í sér-
sakan sjóð sem nemur nú um 22
milljörðum dollara — til álíka fjár-
festinga víða um heim.
Ali Khalifah, fursti og olíumála-
ráðherra, hefur auk þess skorið
olíuframleiðslu Kuwait niður um 25
prósent í því skyni að vernda auðlind
landsins. Auk þess tryggir Kuwait sér
hámarksgróða af olíunni með því að
vinna hana að öllu leyti á heima-
slóðum. Nýlega var býggð
olíuhreinsunarstöð sem kostaði 1,2
miljarða og stöðugt bætist við hinn
mikla skipaflota, en í honum eru
þegar 66 skip. Innan þriggja ára mun
Kuwait geta fullunnið 750.000
tunnur af olíu á dag — eða
helminginn af öllum útflutningi
sínum.
Kuwait er takmörkunum háð þegar
kemur að iðnaðinum þar sem það
hefur ekki yftr neinum auðlindum að
ráða utan olíunnar og gassins. Þar við
bætist að fóiksfjöldi og þar með
vinnuafl er takmarkað. Þess vegna
leggur rlkisstjórnin nú áherslu á að
byggja upp háþróaða þjónustu á sviði