Úrval - 01.08.1982, Side 72
70
ÚRVAL
at þeim 39 sem ekki áttu gæludýr
voru enn á lífi er athugun
Friedmanns hafði staðið í eitt ár, en
30 af gæludýraeigendunum 53.
Vísindamenn grunar að gæludýraeign
sé sérstaklega mikilvæg fyrir roskið
fólk sem ella hefði kannski lítinn eða
engan félagsskap.
ÚrGEO
Ljósmyndarinn James Van Der Zee segir um leið og hann horfir á
mynd af konunni sinni þegar hún var ung að árum en myndin hangir
uppi f vinnustofu lians:
„Þegar hún var ung elskaði ég hana af því að hún var falleg. Þegar
hún eltist elskaði ég hana af því ég þekkti hana.
Leikstjórinn Aifred Hitchcock sagði: ,,Spenningurinn stendur í sam-
bandi við að vita eða vita ekki. Ef sprengja f kvikmynd springur án
þess að nokkur hafi vænst þess veldur það skelfingu en ef áhorfendur
vita að sprengja springur eftir fimm mínútur og hetjan veit ekkert
um það, þá er það spennandi.' ’
Allan morguninn var kennarinn búinn að útskýra foringjahlutverkið
fyrir lögreglunemunum. Hann kallaði einn mannanna til sfn, rétti
honum samanbrotinn miða sem á stóð: ,,Þú berð ábyrgðina. Komdu
öllum út úr stofunni án þess að allt fari á ringulreið.
Lögreglunýliðinn varð orðlaus og fór aftur í sæti sitt.
Sá næsti sem fékk miðann reyndi: ,,Allir út. F;nði!” Enginn
hreyfði sig.
Þriðji maðurinn leit á miðann, brosti svo og sagði: ,,Allt í lagi
strákar, við fáum matarhlé.” Stofan tæmdist á augabragði.
—H.D.
Ungur meþódisti, sem var að læra til prests, leysti eitt sinn
meþódistaprestinn í lítilli borg í Idaho af meðan sá síðarnefndi
skrapp í sumarfrí. Meðan hann var í fríi bar svo við að prestsneminn
var beðinn að greftra trúfastan babtista vegna þess að babtista-
presturinn var líka í fríi.
Ungi maðurinn gerði þetta en hafði þó miklar áhyggjur af því
hvort það hefði verið rétt af sér. Þegar rétti presturinn kom svo aftur
spurði prestsneminn hann hvort hann hefði brotið nokkuð af sér
með því að jarða babtista. ,,Nei, skrattakornið,” svaraði presturinn.
, Jarðaðu bara eins og marga babtista og þú getur!
G.W.