Úrval - 01.08.1982, Page 80
78
ÚRVAL
en hún nær að lengjast. Útkoman:
Árlega kostar 621 dal að halda við
hverjum kílómetra í 1—95. Það er
innan við tíunda hluta af meðal-
kostnaði yfir landið alit sem er 7.500
dalir.
Hjá Rannsóknarstofnun suðvestur-
hluta Texas var gerður tilraunavegur
úr nýju efni sem grundvallaðist á
brennisteini, er féll til við venjulega
verksmiðjuframlciðslu, fremur en
kaupa dýrt nýtt malbik eða portland-
sement. í öðrum ámóta tilraunafram-
kvæmdum víða um land eru slitlög
yngd upp með þvl að nota malaða
gamla hjólbarða eða úrgangsösku frá
orkuverum til uppfyllingar.
Á meðan nú er sannað að bræða
má upp malbik til endurnota hafði
engum komið í hug að umbreyta
mætti í svo miklum mæli portland-
sementi, þessu kalksteinsdufti sem
notað er í steinsteypta vegi. En nokkr-
ir þrjóskir verkfræðingar hjá sam-
gönguráðuneyti lllinoi-ríkis ákváðu
að reyna þegar þeir stóðu frammi
fyriralgeru neyðarástandi árið 1978.
Neyðina bar að þegar ljóst varð að
Edens-hraðbrautin fræga hjá Chicago
væri alveg að hruni komin. Hún er
hluti af' 1—94. Það þóttu yfirþyrm-
andi ótíðindi að brautin væri nær
grotnuð niður. Með einhverju móti
varð að eyðileggja yfir 25 kílómetra af
þessari þjóðflutningsæð og leggja aft-
ur. Það mundi taka fjögur ár.
En Illinois ákvað að tefla djarft og
reyna sements-umbreytingaraðferð.
Verkið var boðið út. Þessi sex akreina
hraðbraut var í rauninni tvær risa-
vaxnar steinsteypuhellur, 25 kíló-
metra langar og 25 sentímetra þykk-
ar. Þar sem ekki var unnt að bræða
þvílíka virkisveggi, bræddu verkfræð-
ingar það með sér hvort ekki mætti
mala þá aftur til nýs lífs. Endurgerðin
hlaut að verða hvaða verktaka sem
var mikii prófraun.
Engu að síður tefldu þrjú fyrirtæki
fram öllum sínum vélakosti í einn
allsherjar maskínuher. Þeir drógu að
sér alls staðar frá jarðýtur, dráttarvéi-
ar, gröfur og grjótmulningsvélar,
hefla og steypulagningarvélar. Þarna
var fylkt heimsins mesta vélaskrímsli,
hreyfanlegu færibandi sem stýrt var
með tölvum og leysigeislum.
Hafist var handa um miðnæturbil,
vornótt eina 1979- Þetta færiband
byrjaði 32 kílómetrum sunnan fylkis-
marka Wisconsin og færðist hægt í átt
til Chicago. Drunandi og skröltandi
glefsaði hver vélin í hælana á annarri.
Þær þrumuðu eftir þjóðveginum og
mölvuðu hann upp I leiðinni. Eftir
því sem malbikslaginu var flett ofan
af og vegarstæðið molnaði var grettis-
tökum úr steinsteypu varpað á báðar
hendur með steypustyrktarjárninu
sem áður hjálpaði til þess að halda
þessu saman.
Hundruð trukka dreif að, miðstýrt
með talstöðvum. Þeir böksuðu með
grettistökin til grjótmulningsstöðvar
sem sett hafði verið upp við veginn.
Eftir að flokkunarvélar höfðu skilið
malbikið frá, menn og seglar tínt
járnið úr, féllu steypubjörgin í heljar-