Úrval - 01.08.1982, Page 99

Úrval - 01.08.1982, Page 99
MÁTTUR HUGARORKUNNAR 97 þú vildir fá? Hvað á ég að gera við mjólkurostinn?” Þessari óspurðu spurningu svaraði lamainn með því að kinka kolli og sagði trapanum að gefa mér ostinn. Hitt atvikið gerðist ekki í Tíbet heldur í landamærahéraðinu sem er hluti af Szetchuan og Kansu í Kína. I útjaðri hins víðáttumikla frum- skógar, sem nær alla leið frá Tagan til Kunka-skarðsins, slógust sex ferða- menn í hópinn með okkur. Þetta hér- að hefur illt orð á sér því tíbetskir ræningjar eru þar stundum á ferð. Þess vegna leitast ferðamenn við að sameinast sem flestir I einn flokk eins vel búnir að vopnum og unnt er. Fimm þessara nýju ferðafélaga voru kínverskir kauprnenn, en sá sjötti var Bönpo ngagspa (töframaður), hávax- inn maður með sítt hár sem hann vafði innan í rautt klæði svo að úr varð heilmikill vefjarhöttur eða túr- ban. Þar sem mig langaði til að fá að vita sem mest um trúarbrögð landsins bauð ég manninum að borða með okkur og ætlaði að nota tækifærið og spyrja hann spjörunum úr. Hann sagðist vera á leið til meistara síns sem væri mikill töframaður og efldi seið á íjalli einu, ekki alllangt frá okkur. Tilgangurinn með seiðnum var að fjötra illan anda sem stöðugt var að ofsækja kynflokkinn er þarna átti heima. Eftir nokkrar varkárar og kæn- legar undirbúningsviðræður af minni hálfu lét ég í ljós þá ósk mína að fá að koma með honum til töframannsins, en lærisveinninn taldi það gersamlega óframkvæmanlegt. Meistara hans mátti ekki með nokkru móti trufla allan þann tunglmánuð sem þurfti til að gera seiðinn að fullu. Eg skildi að það var tilgangslaust að ræða meira við hann um þetta. En ég gerði áætlun um að fylgja honum eftir, þegar hann væri farinn og kom- inn yfir skarðið. Ef ég yrði svo heppin að koma töframanninum að óvörum gat vel verið að ég fengi bæði að sjá töfrahring hans og hann sjálfan. Þess vegna lagði ég fyrir þjóna mína að hafa vakandi auga á þessum gesti okkar svo að hann gæti ekki farið án þess að við yrðum hans vör. Líklega hafa þjónarnir haft of hátt um þetta sín á milli. Ngagspainn sá í gegnum vélabrögð þau sem ég hugð- ist beita meistara hans og sagði mér umbúðalaust að ekkert þýddi að reyna þau. Ég svaraði því til að ég hefði ekkert illt í huga gagnvart meistara hans, mig langaði aðeins til að tala við hann mér til uppbyggingar. Ég skipaði þjóni mínum jafnframt að hafa enn betur gát á gesti mínum en áður. Hann hlaut að verða þess var að hann var í strangri gæslu. En þar sem hann vissi einnig að ekkert illt átti að gera honum og að hann fengi nóg að borða — en það er atriði sem Tíbet- búar meta mikils — tók hann þessu ævintýri léttilega. ,,Þér megið ekki halda að ég hlaupist á brott,” sagði hann við mig. ,,Þér megið setja mig í hlekki ef
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.