Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 9
iðulega krefjast af lesendunum. Þannig má með nokkrum rétti
segja að fagurbókmenntirnar, höfundar þeirra og unnendur, hafi
dregið sig í hlé frá umheiminum og fjarlægst fjöldann en ekki
öfugt.
Afleiðing þessa er síðan sú að útgáfa fagurbókmennta verður
erfiðleikum bundin. Efnahagsleg undirstaða hennar er sjaldnast
sterk þar sem kaupendur eru oftastnær tiltölulega þröngur hópur.
Margir hafa orðið til að gagnrýna sérvisku og sérþarfir þessa
hóps og í því samhengi má skoða orð Þráins Bertelssonar úr grein
frá 1978:
...bókmenntasmekkur fagurkera hefur einkum á síðustu áratugum
fjarlægst smekk og venjur allrar alþýðu ekki síður en kólibrí-
tungnaát fornrómverskra sælkera; með tímanum kemur þetta
náttúrlega niður á fagurkerunum en ekki alþýðunni. (TMM
1/1978: 39)
IV.
Veigamesta ástæðan fyrir þessurn aðskilnaði er sú bylting sem
orðið hefur á öllum lifnaðarháttum okkar Vesturlandabúa síðustu
hundrað árin. Það eru ekki eingöngu framfarir á sviði tækni og
vísinda sem hafa breytt lífi manna. Róttækar breytingar hafa
einnig orðið á félagslegum og efnalegum aðstæðum alls þorra fólks
og í raun hefur grundvöllur sjálfrar samfélagsskipunarinnar tekið
stakkaskiptum. Áður var það einkum efnahagurinn sem setti fólki
skorður en nú orðið má gera ráð fyrir að uppeldi, menntun og
sérhæfing til ákveðinna og afmarkaðra starfa ráði mestu um
lífshlaup manna og lífsviðhorf.
Þessar umfangsmiklu breytingar á lífsháttum hafa haft
margvísleg áhrif á stöðu ritlistarinnar og skapað ný vandamál
sem höfundar þurfa að kljást við. Þar er stærstur vandi tungu-
málsins, og þar með skáldskaparins. Sá vandi er margþættur.
Tungumálið er í kreppu sem kalla mætti ofnotkun. Frá útvarpi
og sjónvarpi bylur stöðugur orðaflaumur á hlustum fólks hvert
sem það fer og allsstaðar hefur það líka ritmálið fyrir augunum;
í dagblöðum, á veggspjöldum, á matvælaumbúðum... Vegna þessa
eru ýmis þau orð og orðtæki sem málið býr yfir orðin flöt og
gagnsæ, orðin að klisjum, ekki síst fyrir tilverknað auglýsinga.
Gegn þessum vanda hafa skáldin ráðist með því að brjóta niður
7