Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Page 53
aðstæðum en samtök manna af ólíkum ættum byggir ennþá allt
sitt á gagnkvæmu trausti og orðheldni.
Gildi þess síðarnefnda er ítrekað æ ofan í æ. Þegar Agamemnon
býður hernum að hverfa heim í öðrum þætti og herinn tekur hann
á orðinu þá segir Odysseifur:
Atreifsson! víst ætla Akkear sér nú að fá þér, konungur, hinnar
mestu smánar meðal allra mæltra manna, er þeir efna eigi við
þig það loforð, er þeir gerðu, þá er þeir voru á leið hingað
/.../ að þú skyldir ekki fyrr frá hverfa, en þú hefðir í eyði
lagt hina veggsterku Ilíonsborg; (II.:34)
í upphafi níunda þáttar er hins vegar svo komið að Agamemnon
vill sjálfur slíta þennan sáttmála og flýja heim en Díómedes kemur
fyrir hann vitinu. Þar kemur fram hjá Díómedesi trúartraust sem
byggir á gildi áreiðanleikans, hann vill berjast uþví guð vísaði
okkur leið hingað." (II.: 166) Orðheldni og áreiðanleiki eru engu að
síður aðstæðubundin. Drengskapurinn í Ilíonskviðu felst ekki í
óháðurn og fyrirfram gefnum siðferðishugmyndum heldur í því að
vera trúr sér og sínurn. Hetjurnar eiga það til að Ijúga og svíkja
óvini sína, þó að í vissum tilvikum ríki traust milli óvina, til
dæmis í vopnahlénu snemma í Ilíonskviðu og eins rnilli þeirra
Akkillesar og Príamusar.
Þess ber að minnast að dyggðir markast af þeim aðstæðum sem
fyrir hendi eru. í Ilíonskviðu eiga menn í stríði þannig að hugrekki
og hyggindi eru þeir eiginleikar sem að mestu haldi koma. Það er
lífsnauðsyn að berjast, eða eins og Ajant segir eitt sinn þegar
hann hvetur félaga sína:
Engin víggirt borg er í nánd, þar er vér gætum varið oss og
haft styrk af borgarlýðnum. Nei, vér sitjum í landi hinna
harðbrynjuðu Trójumanna, liggjum hér við hafið, fjarri
föðurlandi voru. Sú er því eina hjálpin, að neyta handa, og
hlífa sér ekki í orustunni. (II.: 310)
Af framasögðu ætti að vera ljóst að hetjuskapurinn sprettur
upp af aðstæðubundinni nauðsyn og lífsnauðsyn. Mennirnir standa
sarnan til að tryggja hag sinn betur en á rnóti gangast þeir undir
sameiginlegar skyldur. Sú hvöt sem að baki liggur er ódrepandi
51