Ársrit Torfhildar - 01.04.1987, Síða 66
nýr maður með allt aðra heimssýn og er orðinn ngóður ogverðugur
lífsförunautur" að dómi Maríu.
Það sem allar stúlkurnar í bókinni eiga sameiginlegt er fjör og
kátína, þær eru allar undir tvítugu og fara að gráta við minnstu
geðshræringu. John er aftur á móti ráöríkur og frekur og segir
skammarræða Maríu sannleikann urn hann. Ekki er hægt að láta
karlmanninn gráta ef á bjátar, þess vegna er gripið til þung-
lyndisins.
Hjá Else-Marie Nohr er kvenhetjan Lóna lítil, falleg og grönn
17 ára skólastelpa sem verður ástfangin af ræningja sínum - Tom.
Hann skilar Lónu heim en verður sjálfur að fela sig fyrir
lögreglunni. Litla saklausa stúlkan fer heim, reynir árangurslítið
að ljúga að lögreglunni til að hylma yfir Tom, bíður og vonar að
hann fari að láta í sér heyra. Allt í gegnum bókina heyr hún
einmanalega baráttu viö hin ýrnsu illu öfl sem að henni sækja:
Fégráðuga frændann, sjálfselsku ráðskonuna og banvænan sjúkdóm
(sem að lokum vinnst sigur á). í gegnum þessa erfiðleika hennar
er það gagnkvæm ást á Tom sem heldur henni uppi. Andstætt
Maríu hjá Cavling er skiljanlegt að Lóna hrífist af Tom því hann
er |(... hár og herðabreiður, glæsilega og nýtískulega klæddur,
með drengjalegt andlit, þykkt, ljóst hár og brún, dapuleg augu."3)
Það er þó ekki allt því hann er líka góður, fórnfús og skiln-
ingsríkur. í þessari einmanalegu baráttu fellir Lóna tár með vissu
millibili og bíður óvirk heima eftir að Tom komi og segi henni
hvaö hún eigi að gera. En bókin endar vel, þ.e.a.s. með hjónabandi
þeirra.
Aðferð Snjólaugar Bragadóttur er svolítið öðruvísi að því leytinu
til að persónur hennar eru ekki svona yfirþyrmandi fallegar og
saklausar (þær fara samt ekki yfir siðamörkin). Fegurðin kemur
innan frá og er því ómeðvituð eins og hér sést þar sem Jóhanna
skoðar sig í spegli:
Henni fannst allt í lagi með allt fyrir neðan háls og hárið, sem
var þykkt og dökkt og náði alllangt niður á bakið. En andlitið
var vonlaust. Eftir því sem hún hafði lesið um fegrun og þess
háttar í erlendum tímaritum, voru hlutföllin rammskökk og hún
gat engan veginn talist lagleg.
64