Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 4

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 4
Ársrit Torfhildar VIRÐULEGU BÓKMENNTAFRÆÐINEMAR Nú er veturinn á enda og sumarið tekið við þó svo að veðurguðirnir virðist ekki hafa áttað sig á því venju fremur, enda hafa þeir nóg að gera við að koma vorinu af stað í öðrum löndum. Nýliðinn vetur hefur verið heldur daufur hvað félagslíf varðar, teiti fá eða engin og uppákomur má telja á fingrum hálfrar annarrar handar. Nefna má ágætan ljóðaupplestur í Norræna húsinu fyrir jól, sem þáverandi stjóm stóð fyrir og málgleðina sem haldin var í Skólabæ í apríl og núverandi stjórn stóð fyrir. Málgleði þessi snerist upp í nokkurs konar hringborðsumræður, þar sem frekar fáir voru mættir miðað við heildarfjölda bókmenntafræðinema og fólk var ekki tilbúið til að stíga í pontu og þruma yfir þeim sem eftir sátu. Úr þessu urðu hinar skemmtilegustu umræður og margt áhugavert kom upp á yfirborðið. En þó félagslífið hafi verið með daufara móti þennan vetur er ekki þar með sagt að öll nótt sé úti enn. Nú látum við ferska vinda leika um heilabúið í sumar og næsti vetur bíður okkar með nægan tíma til að gera ýmislegt skemmtilegt og er von mín að bókmenntafræðinemar komi þá aftur með kollinn fullan af nýjum hugmyndum til að hrinda í framkvæmd. Hvet ég sérstaklega núverandi nýnema til að láta í sér heyra en heldur hefur verið hljótt um þá undanfarið. Einn merkilegasta atburðinn, hvað varðar félagslíf almennt í vetur, tel ég vera viðreisn Stúdentaleikhússins. Þar tóku sig saman nokkrir framtakssamir nemendur og árangurinn varð ljómandi skemmtileg leiksýning í Tjamarbæ sem vonandi hefur ekki farið framhjá mörgum. Ég vænti þess að leikhúsið sé komið til að vera og persónulega hlakka ég mikið til að sjá næsta afrek. Að lokum vil ég kveðja með tárum það ágæta fólk sem mun útskrifast nú í vor og haust og óska þeim gæfu og gengis á framtíðarbraut. Gleðilegt sumar. Þóra Sigríður, formaður Torfhildar. 2

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.