Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 11

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 11
Ársrit Torfhildar motorcrash. took the mother, sneaked with her secretly all the way to my home, and nursed her gently /.../ she sighed pleasantly after this awful motorcrash. that girl on that bicycle showed great interest in all the motorcrashes in the neighbourhood /... (Motorcrash, life's too good, 1988)3 Músíkin vísar auk þess í frelsið; tímaleysið; .../ going through life without a timepiece did pay off. my reward to be free /.../ hearing the drums of catalan beating my time away /... (Traitor, life's too good, 1988)4 sem þar með verður erótískt líka. Medúsuminni eru á sveimi, viss hætta samfara konum (Motorcrash), móður/jarðar/náttúrumyndir, og hárið/hárskurðurinn í Sick for toys, sem vísar í gamla trú um kraft hárs, svo og í hættulegu konuna sem verður að hárskera til að ná tökum á. Mest eru þó áhrifin frá Þór Eldon, enda ekki furða þar sem hann er beint úr Medúsu, erótíkin sver sig í ætt við minni í bókum hans, 23 hundar og Dauðaljóðin, og titill síðasta stefsins á Lifes too good, er heiti á bók eftir hann: Taktu bensín elskan. Líklegt má telja að skáldið og bassaleikarinn með meiru Bragi Ólafsson hafi bætt hinni tiltölulega mjúku og barnslegu fantasíu inn, þar sem þessi samræða reyndar og fantasíu er áberandi einkenni í bók hans Dragsúgi. Hluti af þeim bræðingi fólks sem umkringt hefur Sykurmolana stofnaði nýverið Danshljómsveit Konráðs Bé (alías Bragi Ólafsson) og heldur hún uppi þeirri (hnignuðu) dægurstefnu sem Sykurmolarnir ganga framhjá, og hópurinn syngur og spilar af hjartans lyst (og list) slagara eins og Vindlinga og viský og villtar meyjar. Dægurtónlist þessi (hnignaða) hefur átt gríðargóða leið upp á pallborðið nú að undanförnu, enda Danshljómsveitin afsprengi síns tíma eins og gefur að skilja. Vinsældir hafa verið gífurlegar og hnignunin fullkomin, svo sem tónleikar á Hótel Sögu sína. Nafnið Medúsa var eins og áður sagði valið með hliðsjón af goðsögninni um ókindina með slönguhárið sem enginn gat augum litið án þess að verða að steini. Og Medúsa féll fyrir morðingjahendi 9

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.