Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Qupperneq 11
Ársrit Torfhildar
motorcrash. took the mother, sneaked with her secretly all the
way to my home, and nursed her gently /.../ she sighed
pleasantly after this awful motorcrash. that girl on that bicycle
showed great interest in all the motorcrashes in the
neighbourhood /...
(Motorcrash, life's too good, 1988)3
Músíkin vísar auk þess í frelsið; tímaleysið;
.../ going through life without a timepiece did pay off. my
reward to be free /.../ hearing the drums of catalan beating my
time away /...
(Traitor, life's too good, 1988)4
sem þar með verður erótískt líka.
Medúsuminni eru á sveimi, viss hætta samfara konum
(Motorcrash), móður/jarðar/náttúrumyndir, og
hárið/hárskurðurinn í Sick for toys, sem vísar í gamla trú um kraft
hárs, svo og í hættulegu konuna sem verður að hárskera til að ná
tökum á.
Mest eru þó áhrifin frá Þór Eldon, enda ekki furða þar sem hann
er beint úr Medúsu, erótíkin sver sig í ætt við minni í bókum hans, 23
hundar og Dauðaljóðin, og titill síðasta stefsins á Lifes too good, er
heiti á bók eftir hann: Taktu bensín elskan.
Líklegt má telja að skáldið og bassaleikarinn með meiru Bragi
Ólafsson hafi bætt hinni tiltölulega mjúku og barnslegu fantasíu inn,
þar sem þessi samræða reyndar og fantasíu er áberandi einkenni í bók
hans Dragsúgi.
Hluti af þeim bræðingi fólks sem umkringt hefur Sykurmolana
stofnaði nýverið Danshljómsveit Konráðs Bé (alías Bragi Ólafsson)
og heldur hún uppi þeirri (hnignuðu) dægurstefnu sem
Sykurmolarnir ganga framhjá, og hópurinn syngur og spilar af
hjartans lyst (og list) slagara eins og Vindlinga og viský og villtar
meyjar.
Dægurtónlist þessi (hnignaða) hefur átt gríðargóða leið upp á
pallborðið nú að undanförnu, enda Danshljómsveitin afsprengi síns
tíma eins og gefur að skilja. Vinsældir hafa verið gífurlegar og
hnignunin fullkomin, svo sem tónleikar á Hótel Sögu sína.
Nafnið Medúsa var eins og áður sagði valið með hliðsjón af
goðsögninni um ókindina með slönguhárið sem enginn gat augum
litið án þess að verða að steini. Og Medúsa féll fyrir morðingjahendi
9