Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 13

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Side 13
Ársrit Torfhildar Hrannar Baldursson þar sem þau fundust Þau lágu saman, hlið við hlið, andlitin vísuðu til himins. Á andlitum peirra sáust sælubros. Ský brugðu sér í drekalíki og drápu hvert annað aftur og enn. Grasið var vott. Vínið var gott. Ekkert mannvirki var sjáanlegt. Náttúran var ekki alspillt. Svartur blettur þýtur eftir þjóðvegum. Hálendisloftið var hreint og tært, lækjarspræna seytlaði ljúft eftir smáum farvegi. Þau sneru höfðum að hvoru öðru...og horfðust lengi í augu. Svartur blettur breytir um stefnu og nálgast Tindajökul. Undir jöklinum lágu pau saman, lóa söng dirrindí og lofaði peim framtíðinni. Nefbroddar peirra mættust. Augu hennar voru brún, hans voru gráblá. Þeim fannst það fallegt. Svartur blettur hefur fundið fórnarlamb og nálgast hratt. Varir peirra mættust, andvörpin dýpkuðu, tvö hjörtu slógu hraðar. Þau brostu með öllu andlitinu, jafnvel eyrun virtust glöð. Napur vindur lék um pau, peim var ekki kalt en um pau fór hrollur. Svartur blettur flýr ekki árekstur úr þessu. Hann ætlaði að segja eitthvað, skalf lítillega og virtist örlítið óöruggur. Hann hafði sagt henni frá þrá sinni til hennar, hún hafði gefið sig honum á vald. Þau vissu að þetta var ást en gátu ekki skilið það. Svartur blettur, árekstur, 5,4,3,2, l...nú!!! "Aðeins þú..." sagði hann, en stoppaði í miðri setningu. Augu hans urðu myrkur, andlit hans varð snjór. Stjarfur og gapandi sagði 11

x

Ársrit Torfhildar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.