Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Qupperneq 18

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Qupperneq 18
Ársrit Torfhildar kannski ekki nægilega sterkt að orði miðað við hvað verk umræddra höfunda voru mikið nýjabrum á sínum tíma. I Tómasi Jónssyni fékk undirmeðvitund söguhetjunnar að flæða óheft um blaðsíðurnar, og í sjálfu sér er ekkert órarmsætt við slíkt; undirmeðvitund mannsins er ekkert óraunverulegri en stéttabarátta eða flutningur úr sveit í borg. Ahugamál módernistanna gömlu voru meðal annars "hinar dimmu slóðir sálfræðinnar" ("the dark places of psychology" eins og Virginia Woolf orðar það í "Modern Fiction", bls. 90), og í Tómasi Jónssyni eru þær slóðir heimsóttar og því fyllsta ástæða til að taka djúpt í árinni þegar fjallað er um slíkt verk í bókmenntasögulegu samhengi. Allt snýst þetta þó um aðferðir til þess að miðla einhverjum veruleika sem umlykur mannfólkið, og ekki skiptir öllu máli hvort menn flokka þær aðferðir undir 'nýtt raunsæi’ eða módernisma. Guðbergur er að mínu mati reyrður við íslenskan veruleika og hefur öðrum höfundum betur tekist að færa þennan veruleika í orð: að "aronsera íslenskan veruleika" (eins og Friðrika Benónýs orðar það í ritdómi í Morgunblaðinu). Það er svo upp og ofan hvort menn vilja gangast við veruleikanum eftir að Guðbergur hefur átt við hann. Þannig eru þeir margir sem verða skelfingu lostnir og jafnvel blóta þegar þeir sjá hvernig skáldið hefur handleikið það sem þeir einhvern tíma kölluðu veruleika, og þrá, ekki 'nýtt raunsæi’, heldur hefðbundið raunsæi. Maðurinn er myndavél (hér eftir nefnd Myndavél) inniheldur þrettán smásögur. Sögurnar eru margvíslegar eins og Örn Ólafsson sagði um þær í ritdómi, en þó ekki það margvíslegar að ekki megi spyrða þær saman og fjalla um í einni grein, og alls ekki eins margvíslegar og ártölin bak við hverja þeirra gætu bent til. Allar eiga þær til að mynda sameiginlegt að hrærast að meira og minna leyti í íslenskum 'veruleika' (nema Brúðan; sá hluti hennar sem gerist í Portúgal). Af eldri skáldskap Guðbergs virðist mér safnið helst skylt bókinni Hjartað býr enn í helli sínum (1982, hér eftir nefnd Hjartað). í þeirri bók er vissulega leitað "fangstaðar við vandmál raunhlítrar samfélags- og samtíðarlýsingar" eins og Ólafur orðar það, og þannig er því að mínu mati einnig háttað í smásögunum. Hjartað er ákveðið uppgjör við raunsæi áttunda áratugarins (nýraunsæið) og ýmsar aðrar hræringar þjóðfélagsins sem þá áttu sér stað, svo sem jafnréttisbaráttu kvenna. I þessu uppgjöri er bæði að finna harða ádeilu og napurt háð, enda er gamanið líklega hvergi 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Ársrit Torfhildar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.