Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Page 30
Ársrit Torfhildar
Ég vil skrifa. Ég hef þegar sagt móður minni það: það er þetta
sem ég vil, skrifa. (25)
LJÓSMYNDIR, ÍMYNDIR, ANDLIT
Hér að ofan var sagt að sögumaður liti ekki svo á að hún væri
að skrifa ævisögu sína. En hvað er hún þá að gera? Kannski er hægt
að segja að hún sé að velta fyrir sér hvað tíminn geri við mann,
hvernig hann breyti manni, hið ytra sem hið innra. Hún horfir á sjálfa
sig utan frá og reynir að skilja. Hún þykist aldrei hafa fortíðina
algjörlega á valdi sínu eins og svo algengt er með sjálfsævisöguritara,
heldur skoðar hún nokkur augnablik úr ævi sinni. I upphafi
sögunnar byrjar sögumaður að segja frá því hvernig tíminn hafi
leikið hana, hvemig andlit hennar breyttist, hvemig það varð gamalt
fyrir aldur fram:
Ég fékk þetta brennivínsandlit áður en áfengið kom til sögunnar.
Áfengið kom til að staðfesta það. (13)
Það er eins og andlit hennar hafi sagt fyrir um hvað ætti eftir að
henda hana. Það var forspátt, hvernig sem það má nú vera:
Fimmtán ára var ég með nautnalegt andlit og ég þekkti ekki
nautnina. (13)
Þetta er samspil andlits og tilfinninga. Andlitið birtir tilfinningar
hennar. Af því að hana langaði til að drepa eldri bróður sinn varð
hún ellileg. Af því að hún beið í ofvæni eftir fyrstu kynlífsreynslu
sinni fékk hún andlit nautnar. Það er áberandi að þó að hún ræði sitt
andlit nákvæmlega eru allir aðrir andlitslausir. Það eru aðeins
tveiminr öðrum persónum lýst að einhverju leyti; elskhuganum og
vinkonu stúlkunnar, sem er ein af fáum persónum bókarinnar sem
hefur nafn; Héléne Lagonelle.
Ljósmyndir eru sögumanni ákaflega hugleiknar, enda helsta
tækið sem er notað til að frysta augnablikið. Stundum er eins og hún
sé að horfa á ljósmynd og lýsi því sem hún sjái á myndinni og
stundum lifnar ljósmyndin við. En þessi ljósmynd var aldrei tekin:
Hún hefði því aðeins getað verið tekin að unnt hefði verið að sjá
fyrir mikilvægi þessa atburðar fyrir líf mitt, siglingarinnar yfir
fljótið. [...] Og fyrir þessa sök, að hún var ekki tekin, hefur hún
einmitt öðlast gildi sitt, nefnilega að hafa óendanleikann að
28