Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 40

Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Síða 40
Ársrit Torfhildar reglufestu yfir væmni umhverfisins. Nokkra stund lét hann flautuna gæla við varimar án þess að blása en spratt skyndilega á fætur og hóf að leika agað, seríalískt verk sem átti að kyrkja væmnina strax í fæðingu og flytja kaldan, yfirvegaðan tón út yfir slepjulegan fjörðinn. Stuttu eftir að bankanum hefur verið lokað lýkur maðurinn upp aðaldyrum hans með aðstoð bankakorts og með lágværu hvissi úr þrýstibúnaði hurðarinnar stígur hann inn í uppljómað anddyrið. Starfsfólkið er flest farið en gjaldkerarnir sitja enn við uppgjör og baka til, ein í hafi auðra skrifborða, situr dragtklædd kona með símtólið klemmt undir vangann. Hún hefur farið úr skónum og skilið þá eftir liggjandi á hliðinni, styður tánum á útglennta stólfæturna og slær tölum inn í tölvuna sem sjálfkrafa raðast í marglita dálka og línur. Skyndilega kallar gjaldkerinn, þybbin kona á fertugsaldri, eitthvað til hinna og bendir fram fyrir sig. Hún hefur tekið eftir því að maðurinn fer ekki út úr anddyrinu þó hann hafi lokið við að nýta sér tölvubankann heldur stendur upp við brunavarnarglerið og skyggnist inn í salinn. Hann þrýstir andlitinu eins þétt að hurðinni og hann megnar svo gjaldkerarnir sjá glögglega ennishúðina fletjast út á glerinu, leggur handarjaðrana á gagnaugun og rýnir inn í fáliðaðan bankann. Konan við tölvuna stendur þegar upp úr sæti sínu og sveiflar hægri hendi valdsmannslega að gjaldkerunum sem líklegast táknar að þeir eigi að láta sem ekkert sé og halda áfram að vinna, enda gefur hún sjálf fordæmi með því að setjast aftur og slá nokkrum tölum inn í vélina til viðbótar. Þybbni gjaldkerinn lætur sér þó ekki segjast því annað veifið lítur hún upp og hvikar augunum æst til hinna eins og hún vilji fiska upp úr þeim bældan óróleikann og fá hann til að blómstra. Loks lætur sessunautur hennar undan og lítur upp sem gefur henni tækifæri til að fjölyrða eilítið um gláp mannsins og vingsa fingrunum slyttislega í áttina til hans. Af hnykkjum þeirra og pati má dæma að framkoma hans orkar undarlega á þau en það er sem þau skorti ráð til að sjá við henni og breyta á annan veg. Að endingu lætur þybbna konan seðalbúntin falla á borðið, tekur upp símann og hringir. Meðan hún talar í símann starir hún einbeitt á gluggagæginn eins og viðbrögð hennar ein og sér nái að hrekja hann á brott. Engu að síður er erfitt að sjá hvað það er í fari mannsins sem veldur óöryggi hennar, rykfrakkinn sem flaksar frá stífpressuðum buxunum og smekklegu bindinu býr aðeins yfir ógn kunnugleikans 38

x

Ársrit Torfhildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Torfhildar
https://timarit.is/publication/1918

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.