Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Page 53
Ársrit Torfhildar
Þórný Hlynsdóttir
ÓSKMYND í SPEGLI
NARKISSOS
Þegar í skógi þegja allir fuglar
þungar krónur trjánna bærast ekki
enginn vindur gárar vatnaspegla
við silfurbirtu mánans ríst þú upp
einsamall þræðir þögla leynistíga
þangað sem innst í myrkurfylgsnum
tjörnin þín bíður kyrr í köldu skyni
svo kristaltær og djúp.
Vilborg Dagbjartsdóttir.
INNGANGUR
Wennicke Eide Cox fæddist í Noregi þegar landið var hernumið
af Þjóðverjum. Þegar menntaskóla lauk lagði hún stund á listnám í
Osló í þrjú ár. Þá hætti hún námi og stundaði margvísleg störf, meðal
annars sem plötusnúður, miðasölukona og útkastari á skemmtistað,
áður en hún fluttist til Kaupmannahafnar 1970. Þaðan fluttist hún
vestur um haf og var búsett þar í mörg ár, meðal annars í Nýju-
Mexíkó og Vestur-Virginíu, en flutti nýlega heim til Noregs aftur.
Smásagan Sister er sú fyrsta sem birtist eftir hana á prenti. Hún er í
smásagnasafninu Women of Darkness þar sem eru eingöngu sögur
sem á einhvern hátt tengjast hryllingi og eru allar eftir konur. Sagan
Sister fjallar um óhugnanlega atburði í lífi þriggja systra. Þeir gerast
innan fjölskyldunnar og er yngsta systirin ein til frásagnar. Sagan er
hryllingssaga og hefur flest einkenni gotneskra sagna, stúlkurnar eru
fangar aðstæðna og sjálfra sín, en sagan sver sig líka í ætt við
femíníska bókmenntatexta þar sem hún lýsir mikilli einsemd
stúlkubarns sem er eitt andspænis samfélaginu og sjálfu sér
(óhugnaður kynferðis). Sagan gerist í einangruðu fjallahéraði og býr
fólkið á strjálum bersvæðum í skóginum. Faðir stúlknanna er látinn
51