Ársrit Torfhildar - 01.04.1991, Page 61
Arsrit Torfhildar
stækki, hún óttast beinlínis að verða kona en vill samt fá að klippa af
sér flétturnar, núverandi ástand er óþolandi og hún þráir breytinguna
en þorir samt ekki að stíga skrefið til fulls. "I want to be set free; and
yet I am afraid" (218). Til að barnið geti orðið kona verður það að
"deyja" og til þess er Janey ekki tilbúin. Torræði hins kvenlega er í
nútíma gotnesku þjappað saman í torræði kvenlíkamans, hann er
séður sem andstæðingur sjálfsins og afbrigðilegur að því leyti
(líkaminn er þá kannski tvífari númer tvö). Þegar nútíma gotneska
gefur því sem áður var falið sýnilegt form, einblínir hún gjarnan á
afskræmdar líkamsmyndir og verður grótesk. Mynd systurinnar í
vatninu er afskræmd. Þau augnablik sem Janey sér hana sem lík
verður lýsingin á henni grótesk. Ótti gróteskunnar felst í ótta við
kvenleika. Kvenleikinn er ógnvaldur sjálfsvitundarinnar, hann hótar
að þurrka út mörk sjálfsins.8
Til að sigrast á vandamálinu, Mr. Emrick og kynþroskanum,
verður Janey að uppgötva hvað það er sem hann sækist eftir, hún
verður að skilja og uppgötva leyndarmál kvenlíkamans og horfast í
augu við þau. Likaminn er fangelsi hennar. Hún verður að velja
milli kvenleikans og dauðans sem og samrunans við systur sína í leit
sinni að sjálfsímynd, en hún velur í rauninni hvorugt og er úrkast í
lok sögunnar, kona með barnssál.
Frumótti gotneskunnar er fyrir margar konur hræðslan við að
losna ekki undan áhrifavaldi Móðurinnar (Hins/kastalans) og takast
þar af leiðandi ekki að mynda sér eigin sjálfsvitund og verða því
ekkert. Úrkastið er ekkert, án sjálfs. Rannsókn kvenhetjunnar á
kastalanum (í Sister er það skógurinn) er í raun rannsókn á því sem
hún hefur erft frá móður sinni, hversu stór hluti móðurinnar hún sé.
Hún er hvort tveggja hún sjálf og móðir sín.
Sambandið við móðurina er í senn ástar- og haturssamband og
því fylgir eilíf togstreita sjálfsins við móðurímyndina. Augusta býr
yfir sama leyndarmáli og móðirin, hún þekkir samskipti kynjanna,
hún er kona en Janey ekki og því hlýtur Janey í lokin að hafna henni
þar sem hún getur ekki horfst í augu við sjálfa sig sem konu; "I tread
water. I cannot look: I cannot look away. My sister Augusta, is ten;
who is this miniwoman coiling pondgreen round his body in a
dreadful parody of passion, hungry mouth devouring murderer’s
lips?"(226). Systirin er orðin Hinn, það að hún drepur Mr. Emrick
styður tvífaraminni sögunnar því að "...um eiginlega tvífarasögu er
59